GENGI GJALDMIÐLA
Hvað færðu fyrir krónurnar?
Reiknaðu gengi erlendra gjaldmiðla og íslensku krónunnar og sjáðu hver þróunin hefur verið að að undanförnu.
Notast er við viðmiðunargengi Seðlabanka Íslands og uppfærist gengisskráning daglega.

Viltu bóka námskeið eða fyrirlestur?
Fyrirvari
Gengisgögn eru frá Seðlabanka Íslands en útreikningar og framsetning á vegum BB ráðgjafar slf. Reiknivélin notar opinbert viðmiðunargengi bankans, sem er almennt birt um kl. 16 á viðskiptadögum. Dagsetningar eru birtar við reiknivélina.
Umreikningurinn er eingöngu til upplýsingar og viðmiðunar og er ekki tilboð um gjaldeyrisviðskipti og ekki loforð um að notast verði við slíkt gengi í viðskiptum. Gengi banka og kortafyrirtækja getur verið annað en hér kemur fram. Gjöld og gengisálag eru ekki innifalin. Gögn geta tafist eða verið leiðrétt og villur geta komið fram í útreikningi eða framsetningu.
Fjárhæðir í íslenskum krónum eru sýndar án aukastafa en fjárhæðir í erlendum gjaldmiðlum með tveimur aukastöfum. Útreikningar nota ónámunduð gildi.
Grafið sýnir breytingu á því magni erlends gjaldeyris sem fæst fyrir sömu krónutölu. Jákvæð breyting táknar styrkingu krónunnar en neikvæð breyting veikingu. Breytingin er reiknuð sem (gengi í upphafi / gengi í lok tímabils − 1) × 100.
Þegar upphafsdagur tímabils er ekki skráningardagur er miðað við síðustu skráningu þar á undan. Samanburður frá áramótum miðast við síðustu skráningu fyrra árs. Ef gögn ná ekki yfir allt valið tímabil birtist ekki samanburður fyrir það tímabil. Röðun gjaldmiðla miðast aðeins við þá gjaldmiðla sem notandi hefur valið og hafa samanburðarhæfar dagsetningar.
Samanburður fjárhæða sýnir aðeins áhrif gengisbreytinga. Verðbreytingar erlendis og viðskiptagjöld eru ekki meðtalin. Þóknanir og gjöld geta fylgt kaupum og sölu á gjaldeyri, sem og millifærslum milli landa og er gott að kynna sér slíkan kostnað. Seðlabanki Íslands ábyrgist ekki að upplýsingar sem notast er við hér séu ávallt villulausar og tekur ekki ábyrgð á afleiðingum notkunar þeirra.
Heimild gengisgagna: https://sedlabanki.is/gagnatorg/opinber-gengisskraning/
Fyrirvari Seðlabankans: https://sedlabanki.is/fyrirvari/

.jpg)
.jpg)
.png)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.png)
.jpg)
.jpg)
.jpeg)
.jpg)
.jpg)
.png)