top of page

Reiknivél

VERÐLAGSREIKNIVÉL

Þú fékkst meira í nammipokann fyrir 100 krónur í gamla daga. En hversu mikið meira?

​

Verðlagsreiknivélin sýnir hvað fjárhæð frá fyrri tíð jafngildir í krónum dagsins, miðað við vísitölu neysluverðs. Hún reiknar líka áhrif verðbólgu á bandaríkjadollar, evru og breskt pund.

c15c6f_52e36534b68d4ed1985e4c4b0c5c0e7e~mv2.jpg

Hvernig virkar reiknivélin?

Reiknivélin ber saman vísitölu verðlags á tveimur tímapunktum. Ef vísitalan hefur tvöfaldast síðan fjárhæðin átti við þarf tvöfalt fleiri krónur í dag til að kaupa það sama.

Fyrir íslenskar krónur er notuð vísitala neysluverðs frá Hagstofu Íslands. Fyrir dollar vísitala neysluverðs frá U.S. Bureau of Labor Statistics, evru samræmd vísitala neysluverðs frá Eurostat og pund vísitala neysluverðs frá Office of National Statistics. Gögnin eru uppfærð mánaðarlega.

Dæmi

  • 100 kr. í janúar árið 1990 jafngilda um 503 kr. í október 2026.

  • Meðaltekjur á Íslandi árið 2020, 591.000 kr. á mánuði, jafngilda um 844.000 kr. í október 2026.
     

Algengar spurningar
  • Hvað er verðbólga? Verðbólga er hækkun á almennu verðlagi. Þegar verðbólga er 5% kostar sama karfa af vörum og þjónustu 5% meira en fyrir ári. Nánar í orðasafninu.

  • Hver er munurinn á nafnvirði og raunvirði? Nafnvirði er fjárhæðin eins og hún var skráð. Raunvirði er hvað hún jafngildir í kaupmætti dagsins. Reiknaðu nafn- og raunávöxtun.

  • Hvers vegna eru launin mín ekki hærri ef verðlag hefur hækkað svona mikið? Laun og verðlag hækka ekki endilega jafn hratt. Ef laun hækka hraðar en verðlag eykst kaupmáttur. Hvað er kaupmáttur?
     

Tengt efni: vísitala neysluverðs · raunvextir · verðtrygging

Betri yfirsýn yfir fjármálin

Skráðu þig á póstlista og fáðu send ókeypis fréttabréf um persónuleg fjármál og lífeyrismál. Fáðu sendan gagnlegan fróðleik sem hjálpar þér að taka betri fjárhagslegar ákvarðanir.

Persónuleg fjármál

Takk fyrir að skrá þig

Lífeyrismál

Takk fyrir að skrá þig

Um Björn

Björn er sjálfstæður og óháður fjármálaráðgjafi sem haldið hefur fyrirlestra og námskeið um fjármál í nær tvo áratugi.

Hann er reglulegur álitsgjafi í fjölmiðlum, greinahöfundur og höfundur bókarinnar Peningar.

Fyrirvari

Upplýsingar á síðunni eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem tilboð eða ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga. Ekki er borin ábyrgð á fjárfestingarákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinga á síðunni. Upplýsingarnar byggja á heimildum sem eru taldar áreiðanlegar en ekki er hægt að ábyrgjast nákvæmni né réttmæti þeirra. Áskilinn er réttur til leiðréttinga.

Reiknivélinni er ætlað að sýna fram á hvaða áhrif verðbólga hefur yfir tíma. Mælt er með því að einnig séu skoðaðar aðrar verðlagsreiknivélar til samanburðar.

Villur gætu leynst í reiknivélinni og áskilinn er réttur til breytinga.

bottom of page

Viltu sjá meira frá Birni Berg í Google-leit?

Veldu Björn Berg sem heimild hjá Google ↗