top of page

Hve­nær á ég að greiða inn á lánið?

Writer: Björn Berg Gunnarsson
Björn Berg Gunnarsson
30 minutes ago
3 min read
Hús í Reykjavík

Björn Berg svarar spurningum lesenda Vísis


54 ára kona spyr:

Sæll. Nú er ég að velta fyrir mér að borga sirka 1,5 milljón inn á 17 milljóna króna húsnæðislán sem ég er með. Er eitthvað sérstakt sem ég þarf að hafa í huga, er einhver tímapunktur betri en annar eða get ég greitt inn á höfuðstólinn hvenær sem er? Með góðri kveðju og þökk.

Björn Berg svarar lesendum Vísis

Þetta líst mér á. Mér leiðist seint að benda á kosti þess að greiða inn á húsnæðislán, en með því færðu ljómandi góða ávöxtun, skattfrjálsa og án áhættu. En það er þó rétt sem þig grunar, það þarf að huga að ýmsu.


Uppgreiðslugjald


Flestum bankalánum sem bera fasta vexti fylgir uppgreiðslugjald, ef meira en ein milljón króna er greidd inn á lánið á ári. Gjaldið getur þó aldrei verið meira en 0,2% fyrir hvert heilt ár sem eftir lifir af fastvaxtatímabilinu. Undantekningar eru viss eldri lán hjá HMS, sem þarf að skoða vel og vandlega.


Ef uppgreiðslugjald er á þínu láni er kostnaðurinn þó væntanlega svo lítill að hann hefur tæplega áhrif á fyrirætlanir þínar.


Hlaðvarpið Spurt og svarað með Birni Berg

Nýtt hlaðvarp um fjármál


Viltu læra meira um fjármál og peninga? Í þættinum Spurt og svarað ræðir Björn Berg um hinar ýmsu hliðar fjármála og svarar spurningum hlustenda.​


Þátturinn er aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum sem og á YouTube.



Heppilegasta tímasetningin


Hvenær nákvæmlega er þá best að ráðast í innborgunina? Stutta svarið er núna strax. Með því eru það aðeins 15,5 milljónir króna sem bera vexti fram að næsta gjalddaga í stað sautján milljóna og það er að sjálfsögðu ódýrara fyrir þig.


En hvers vegna er þá varla hægt að líta við á Facebook án þess að sjá fólk býsnast yfir því hve mikil mistök það hafi verið að greiða inn á lánið, þar sem „allt fór í vexti“? Það er vegna misskilnings um hvernig rukkað er af lánum. Þegar greiðsluseðillinn berst þér ert þú beðin um að greiða hluta af eftirstöðvum lánsins sem og vexti. Vextina þarf að sjálfsögðu að greiða, en þeir bætast daglega við kostnað lánsins.


Sé greitt inn á lán áður en kemur að gjalddaga þess getur verið að hluti greiðslunnar fari í að greiða þá vexti sem safnast hafa frá síðasta gjalddaga og afgangurinn á höfuðstól lánsins. Það getur þá valdið því að greiðsluseðillinn sem næst berst inn um lúguna verður lægri sem því nemur, vegna þess að vextir hafa þegar verið greiddir. Það er ekkert neikvætt við það, innborgunin nýttist sannarlega. Nýlegar breytingar á lánakerfum hafa þó gert það að verkum að í dag fer slík umframgreiðsla alfarið á höfuðstól, óháð tímasetningu.


Ef þú vilt halda áfram að greiða inn á lánið, til dæmis með reglubundnum hætti, gæti þó verið þægilegast fyrir þig að greiða viðbótargreiðsluna á gjalddaga, eftir að gengið hefur verið frá mánaðarlegri greiðslu lánsins. Þá getur þú verið viss um að hver króna fari alfarið á höfuðstól lánsins.


Hafnarhvoll, Tryggvagötu 11 í Reykjavík

Ertu að leita að persónulegri ráðgjöf?


Bókaðu tíma á skrifstofu Björns í Hafnarhvoli, eða á fjarfundi.



Hvað gerist ef þú heldur greiðslubyrðinni óbreyttri?

Nú veit ég ekki hvort lánið þitt sé verðtryggt eða óverðtryggt, með jöfnum afborgunum eða jöfnum greiðslum, né hver kjörin eru og lengd lánsins. Ef við gefum okkur þó að um tuttugu ára óverðtryggt jafngreiðslulán sé að ræða, sem ber 9,35% vexti, er áhugavert að líta á áhrif þess að 1,5 milljónir króna séu greiddar inn á lánið.


Í dag væri mánaðarleg greiðslubyrði slíks láns 156.921 kr. Eftir innborgunina verður greiðslubyrðin 143.085 kr. Þú hefur lækkað greiðslubyrði lánsins um tæp 14.000 kr.


En hvað ef þú heldur óbreyttri greiðslubyrði og heldur áfram að greiða 156.921 í hverjum mánuði, óháð því hvað þú verður beðin um að greiða? Þá gerist nefnilega nokkuð ansi merkilegt. Í stað þess að það taki þig 20 ár að greiða lánið upp að fullu tekur það tæp 16 ár. Með það í huga og þínar aðstæður getur þú því velt fyrir þér hvort vegur þyngra, 14.000 kr. aukið svigrúm á mánuði eða að vera skuldlaus fjórum árum á undan áætlun.


Betri yfirsýn yfir fjármálin

Skráðu þig á póstlista og fáðu send ókeypis fréttabréf um persónuleg fjármál og lífeyrismál. Fáðu sendan gagnlegan fróðleik sem hjálpar þér að taka betri fjárhagslegar ákvarðanir.

Persónuleg fjármál

Takk fyrir að skrá þig

Lífeyrismál

Takk fyrir að skrá þig

Um Björn Berg

Björn Berg Gunnarsson er sjálfstæður fjármálaráðgjafi og fyrirlesari í Reykjavík.

Hann hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 2007, þar af sem fræðslustjóri og deildarstjóri greiningardeildar Íslandsbanka. Björn rekur ráðgjafarþjónustuna BB rágjöf, býður upp á námskeið og fyrirlestra fyrir vinnustaði og einstaklinga og er reglulegur álitsgjafi um fjármál í íslenskum fjölmiðlum. Hann er höfundur bókarinnar Peningar (2021).

bottom of page

Viltu sjá meira frá Birni Berg í Google-leit?

Veldu Björn Berg sem heimild hjá Google ↗