Hrekkjavakan slær öskudeginum við: Svona eyðir fólk miklu í hryllinginn


Bandaríkjamenn eyða 85 milljörðum króna á ári í hrekkjavökubúninga fyrir gæludýrin sín.
Er það ekki merkilegt? Vissulega eru Bandaríkjamenn margir (tæplega þúsund sinnum fleiri en við), en 85 milljarðar króna er hreint ótrúleg fjárhæð.
Við sjáum vissulega ekki marga hunda í vampýrubúningum vappandi um göturnar hér á landi, en hvað hrekkjavökuna varðar, rétt eins og jólin, líkjumst við Bandaríkjamönnum æ meira. Það er kannski óvarlegt að ætla að hér séu blessuð gæludýrin færð í grímubúninga fyrir 85 milljónir króna á ári, en við virðumst stefna þangað.
Hrekkjavökuæði í Svíþjóð
Samkvæmt úttekt samtaka verslunarinnar í Svíþjóð hyggjast tveir af hverjum þremur Svíum halda upp á hrekkjavökuna og er hlutfallið 82% meðal barnafjölskyldna. Gert er ráð fyrir að útgjöld vegna hátíðarinnar aukist um heil 20% milli ára og nemi um 23 milljörðum íslenskra króna.
Það er ekki sama stemningin í Danmörku, en þar segist aðeins helmingur landsmanna ætla að gera sér glaðan dag og áætluð eyðsla er aðeins um fjórðungur á við það sem Svíar eyða.
Aðeins um einn af hverjum fimm Norðmönnum hyggst eyða peningum í búninga, sælgæti eða skreytingar en þeir se taka þátt ætla heldur betur að eyða norsku krónunum sínum, eða fyrir andvirði um 14.000 íslenskra króna hver.
Stærsta hrekkjavökuár sögunnar vestanhafs
Bandaríkjamenn áætla svipuð útgjöld á mann og Norðmenn, en mun hærra hlutfall þeirra heldur upp á Hrekkjavökuna, eða um þrír af hverjum fjórum. Þarlend samtök verslunarinnar spá því að um 1.650 milljörðum króna verði varið í kaup á búningum, kortum, skreytingum og sælgæti vegna dagsins, eða meira en nokkru sinni fyrr í dollurum talið. Slagar það hátt í fjárlög íslenska ríkisins. Þegar leiðrétt hefur verið fyrir verðbólgu kemur þó í ljós að eyðslan var meiri að raunvirði í fyrra og 2023.
Áætluð heildarútgjöld Bandaríkjamanna til Hrekkjavökunnar
Milljarðar króna, á verðlagi 2026

Áhugavert er að sjá að hrekkjavökuverslunin færist sífellt framar í dagatalið. Fyrir um áratug byrjaði um þriðjungur Bandaríkjamanna innkaupin áður en októbermánuður gekk í garð, en í dag er hlutfallið komið í um helming. En hvert fara allir þessir peningar?

540 milljarðar í búninga
Um þriðjungur útgjaldanna fer í að kaupa grímubúninga, eða um 540 milljarðar króna. 525 milljörðum verður varið í kaup á graskerjum og öðrum skreytingum innanhúss og utan. Þá verður 500 milljörðum eytt í sælgæti, en mest selda tegundin er Reese's hnetusmjörsnammi. Tæpir 100 milljarðar fara svo í að gleðja vini og vandamenn með hrekkjavökukortum, sem vinsæl eru þar í landi en við erum blessunarlega laus við hér.
85 milljarðar í gæludýrin
En hvaða grímubúninga er verið að kaupa? Helmingur búningasölu er fyrir fullorðna og rúmur þriðjungur fyrir börnin. Afganginum, um 85 milljörðum króna, er eins og áður segir varið í búninga á gæludýr. Vinsælastir slíkra búninga breyta dýrunum í grasker, pylsur og drauga.
Hvað með okkur Íslendinga?
Árið 2022 sagði RÚV frá því að að flutt hafi verið til landsins 100 tonn af graskerjum. Ef við gefum okkur að meðalþyngd þeirra sé 4kg og hvert grasker kosti um 2.000 krónur nemur söluverðmætið um 50 milljónum króna. Það er þó ágiskun og áhugavert væri að vita hve umfangsmikil raunveruleg velta hrekkjavökuhagkerfisins er orðin hér á landi.
Ýmsir íslenskir framleiðendur bjóða núorðið upp á vörur sem tengjast hátíðinni og má þar nefna bjórinn Hrekkjaböku frá Gæðingi, sælgætispoka frá Nóa-Siríusi og Góu, graskerskökur og -brauð og Blóðappelsín frá Ölgerðinni. Hrekkjavakan verður sífellt fyrirferðarmeiri á þessum árstíma og virðist falla vel í kramið hjá Íslendingum í skammdeginu.
Það er ekkert nema gott um það að segja. En þegar ég sé smáhund í Spider-Man búningi segi ég stopp.



