top of page

Tekjuhæstu hrekkjavökumyndirnar

Writer: Björn Berg Gunnarsson
Björn Berg Gunnarsson
19 hours ago
5 min read

Updated: 6 minutes ago

Jamie Lee Curtis í Halloween

Vissulega má segja að kvikmyndin IT frá árinu 2017 sé tekjuhæsta hryllingsmynd allra tíma. Hún trónir á toppi hinna ýmsu lista sem birtir hafa verið, en því miður er tiltölulega lítið að marka flestar slíkar greiningar.


Sjaldan er litið til verðlags á þeim tíma sem tekjurnar bárust, oft er aðeins litið á sölu bíómiða og þá jafnvel aðeins í Bandaríkjunum. Ekki er reynt að rekja heildartekjur og þegar meta á hagnað er heildarkostnaður, svo sem hlutur bíóhúsa, tryggingar, markaðs- og dreifingarkostnaður sjaldan tekinn með í dæminu.


Þessi ósiður margra fjölmiðla var til umræðu í erindi á Haustráðstefnu Advaniu um árið, sem hér má sjá.



Hrekkjavakan


Að sjálfsögðu er freistandi að endurmeta listann yfir tekjuhæstu eða arðbærustu hryllingsmyndir allra tíma, en nú styttist í Hrekkjavöku. Að því tilefni leit ég sérstaklega á þær kvikmyndir sem frumsýndar voru um hátíðina, eða rétt þar um bil.


Hvaða hrekkjavökumynd ætli hafa skilað mestum tekjum um frumsýningarhelgina? Ekki vikuna á eftir, ekki í sjónvarpi, ekki á DVD. Aðeins um frumsýningarhelgina.


Lítum á þær tíu hryllingsmyndir sem frumsýndar hafa verið um Hrekkjavökuna og skilað mestum tekjum á heimsvísu um frumsýningarhelgina. Allar miðasölutekjur hafa verið færðar á verðlag dagsins í dag.


Hrekkjavökuþema í hlaðvarpinu


Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Spurt og svarað er rætt verður um hvernig heimilin verja peningum í hrekkjavökuna, tekjuhæstu tölvuleikina og litið verður á nokkur hrikaleg mistök í fyrirtækjarekstri.



  1. Halloween Ends (2022)

Halloween Ends

Tíunda tekjuhæsta Hrekkjavökumyndin er þrettánda og mögulega síðasta myndin í samnefndri seríu.


Hún er meðal þeirra nýjustu á listanum og sýnir að þrátt fyrir áhyggjur af bíóáhuga fólks er enn stemning fyrir hrollvekjum, Jamie Lee Curtis og Michael Myers.


Um frumsýningarhelgina 2022 seldust miðar fyrir um 6 milljarða króna.


Fyrir Blumhouse, framleiðanda myndarinnar, var heilmikill hagnaður tryggður áður en myndin var frumsýnd þar sem Universal hafði greitt fúlgur fjár fyrir dreifingarréttinn.


  1. Halloween Kills (2021)



Halloween Kills

Nú hafa íbúar Haddonfield ákveðið að taka höndum saman og skal Michael Myers drepinn fyrir fullt og allt. Slíkt þarf fólk greinilega að sjá í bíóhúsi, enda er um níundu tekjuhæstu Hrekkjavökumynd sögunnar að ræða.


Myndin var frumsýnd í miðjum Covid-19 faraldrinum, en þrátt fyrir það flykktust hryllingsþyrstir áhorfendur í kvikmyndahúsin. Merkilegt er að sjá að auk ofurhetjumynda eru það hryllingsmyndirnar sem virðast bera uppi bíóbransann í dag.


Miðar seldust fyrir tæpa 8 milljarða króna.



  1. The Grudge (2004)


The Grudge


Myndin er frá gullöld asískra endurgerða í Hollywood sem segja má að The Ring frá 2002 hleypti af af stað.


Fyrirmynd The Grudge, japanska myndin Ju-On: The Gruge kom út á því sama ári.

Myndin hlaut afar góðar viðtökur, en ekki var beint verið að finna upp hljólið þar sem um er að ræða hina sígildu draugasögu um hús sem bölvun hvílir á. Sarah Michelle Gellar, sem áður hafði slegið í gegn í hinum stórgóðu hryllingsmyndum I know what you did last summer og Scream 2, er þarna langt í frá í sinni fyrstu draugamynd þar sem hún lék einnig í Scooby-Doo 1 og 2.


Miðar á The Grudge seldust fyrir um 8 milljarða króna.



  1. Saw III (2006)

Saw 3


Það tók sinn tíma að gera Saw 3 hæfa fyrir bíóhúsin vestanhafs, en sjö sinnum þurfti að gera breytingar svo myndin fengi R-flokkun og þætti því hæf til sýninga.


Enn er Jigsaw mættur til að pína fólk og enn kemur hann þeim í nær ómögulegar aðstæður þar sem leysa skal þrautir og allt er undir.


Þrátt fyrir nokkuð dræmar viðtökur meðal gagnrýnenda höfðu fyrstu myndirnar tvær gert nóg til að vekja forvitni bíógesta og rokseldust miðar um frumsýningarhelgina.


Miðar á Saw III seldust fyrir rúma 8 milljarða króna.



  1. Annabelle (2014)

Annabelle


Hryllingsmyndin The Conjuring sló eftirminnilega í gegn árið 2013. Ári síðar þótti tilefni til að hræða úr fólki líftóruna að nýju og nú var viðfangsefnið prakkarastrik illu brúðunnar Annabelle, en myndirnar tengjast lauslega.


Framleiðsla myndarinnar kostaði tæpan milljarð króna, en vegna vinsælda The Conjuring var fólk hvatt til að láta þetta fortíðarframhald ekki framhjá sér fara.


Þrátt fyrir að gagnrýnendur hafi verið afar sparsamir á hrósið þénaði Annabelle um 9 milljarða króna um frumsýningarhelgina.


Um er að ræða eina arðbærustu hryllingsmynd sögunnar.



  1. Scary Movie 3 (2003)

Scary Movie 3


Megum við ekki örugglega kalla Scary Movie hryllingsmyndir? Þemað er það sama og því skulum við leyfa þessari að vera með.


Í myndinni eru hryllings- og spennumyndir samtímans teknar fyrir og til verksins var fenginn besti leikstjóri slíkra mynda nokkru sinni, David Zucker. Zucker hafði áður gert myndir á borð við Airplane, Top Secret! og Naked Gun.


Myndin þótti nokkuð dýr í framleiðslu en afar sterk frumsýningarhelgi og góður gangur í kjölfarið varð til þess að Zucker var einnig falið að leikstýra fjórðu myndinni í seríunni.


Um frumsýningarhelgina seldust miðar á Scary Movie 3 fyrir um 10 milljarða króna.


Farið yfir fjármálin

Námskeið fyrir hópa - Bættu fjármálin!


Bókaðu námskeið fyrir fyrirlestur fyrir þinn hóp.




  1. Paranormal Activity 2 (2010)

Paranormal Activity 2


Öryggismyndavélar fanga ógnvekjandi og óútskýranlega atburði á heimili nokkru.


Eins og svo oft áður er gengið á lagið þegar hryllingsmynd slær í gegn og boðið upp á framhald, sem gerist á undan fyrstu myndinni. Og aftur gera vinsældir fyrri myndarinnar framleiðendum kleift að verja litlum fjárhæðum í nýja mynd sem þó selst vel.


Miðar seldust fyrir 12 milljarða króna um frumsýningarhelgina, sem þýðir að hún hefur væntanlega skilað hagnaði strax á fyrsta degi, þrátt fyrir að tekið sé tillit til dreifingarkostnaðar og hlutar kvikmyndahúsanna í miðasölu. Slíkur árangur er fáheyrður í kvikmyndaheiminum.



  1. Paranormal Activity 3 (2011)

Paranormal Activity 3

Þriðja myndin gekk enn betur. Hún var eilítið dýrari í framleiðslu (kostaði um 700 milljónir króna) en laðaði enn fleiri í bíósætin.


Enn fylgjumst við með í gegnum öryggismyndavélar, en auk þess hefur hryllingurinn verið festur á VHS-spólur þremur áratugum áður.


Myndin fékk þokkalega dóma, en eins og áður segir voru áhorfendur nógu spenntir til að flykkjast í bíóhúsin og greiða um frumsýningarhelgina um 14 milljarða króna.




  1. Halloween (2018)

Halloween


Þriðja Halloweenmyndin á listanum er jafnframt sú söluhæsta um Hrekkjavökuna.


Myndinni er ætlað að vera beint framhald hinnar upprunalegu Halloween frá árinu 1978 og snýr Jamie Lee Curtis aftur sem Laurie 40 árum síðar.


Michael Myers sleppur úr fangageymslu og þá er fjandinn laus, myndin er tilvalin til áhorfs á Hrekkjavökunni þar sem hún gerist akkúrat þá.


Áhugavert er frá að segja að engin önnur mynd, með aðalleikkonu eldri en 55 ára, hefur nokkru sinni þénað eins mikið um frumsýningarhelgina. Miðar seldust þá fyrir rúma 14 milljarða króna.




  1. Five Nights at Freddy's (2023)



Five nights at Freddy's

Öryggisvörur hefði betur sleppt því að taka að sér næturvakt á yfirgefnum veitingastað. Hann vissi nefnilega ekki að vélmenni sem þar höfðu verið skilin eftir voru andsetin og myrtu hvern þann sem á vegi þeirra varð.


Myndin er sú eina á þessum lista sem gerð er eftir tölvuleik, en samnefndur hryllingsleikur fyrir börn kom út árið 2014 og sló eftirminnilega í gegn.


Um frumsýningarhelgina seldust bíómiðar á myndina fyrir heila 17 milljarða króna, sem þarf að teljast sérlega áhugavert fyrir þær sakir að samtímis var hún frumsýnd á streymisveitu Peacock (NBC) í Bandaríkjunum.

Betri yfirsýn yfir fjármálin

Skráðu þig á póstlista og fáðu send ókeypis fréttabréf um persónuleg fjármál og lífeyrismál. Fáðu sendan gagnlegan fróðleik sem hjálpar þér að taka betri fjárhagslegar ákvarðanir.

Persónuleg fjármál

Takk fyrir að skrá þig

Lífeyrismál

Takk fyrir að skrá þig

Um Björn Berg

Björn Berg Gunnarsson er sjálfstæður fjármálaráðgjafi og fyrirlesari í Reykjavík.

Hann hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 2007, þar af sem fræðslustjóri og deildarstjóri greiningardeildar Íslandsbanka. Björn rekur ráðgjafarþjónustuna BB rágjöf, býður upp á námskeið og fyrirlestra fyrir vinnustaði og einstaklinga og er reglulegur álitsgjafi um fjármál í íslenskum fjölmiðlum. Hann er höfundur bókarinnar Peningar (2021).

bottom of page

Viltu sjá meira frá Birni Berg í Google-leit?

Veldu Björn Berg sem heimild hjá Google ↗