top of page

GTA 6 - Dýrasta afþreyingarvara sögunar?

  • Writer: Björn Berg Gunnarsson
    Björn Berg Gunnarsson
  • May 22
  • 3 min read
Mynd úr leiknum frá Rockstar

19. nóvember næstkomandi er aldrei að vita nema tölvuleikurinn Grand Theft Auto VI (GTA 6) verði loks gefinn út, eftir sex ára vinnu. Útgáfu hefur áður verið frestað, en fárra leikja hefur verið beðið með jafn mikilli eftirvæntingu. Eflaust verður hann skemmtilegur, umfangsmikill og glæsilegur en það er fjármálahliðin sem heillar hér. Hér virðist nefnilega ekki aðeins vera í vændum dýrasti tölvuleikur sögunnar heldur mögulega dýrasta afþreyingarvara allra tíma.


Liftum snöggvast upp vélarhlífinni og gæjumst í það helsta.


Getur hann í alvöru hafa kostað tæpa 200 milljarða króna?


Framleiðendurnir Rockstar og Take-Two hafa ekki staðfest opinberlega hvað gerð leiksins hefur kostnað er kemur til með að kosta. Það er því ekki hægt að slá því föstu að leikurinn kosti einn, einn og hálfan eða tvo milljarða dollara, en það eru þó fjárhæðirnar sem áætlaðar eru og þær eru ekki úr lausu lofti gripnar.


Greinendur og fjölmiðlar sem hvað ítarlegast fjalla um leikjaiðnaðinn nefna oftast 1–1,5 milljarða dollara þegar litið er á heildarkostnað, þar með talið framleiðslu, markaðssetningu og margra ára þróunarvinnu. Hér er um að ræða áætlanir sem byggja á umfangi framleiðslunnar, öðrum leikjum og þekkingu fólks úr greininni. Samkvæmt hóflegustu spám gæti kostnaðurinn því numið yfir 120 milljörðum íslenskra króna, sem er víðsfjarri því sem áður hefur sést á þessum ört vaxandi markaði.


Til samanburðar hefur verið nefnt að GTA 4, sem kom út árið 2008, hafi kostað um 100 milljónir dollara og GTA 5 (2013) um 265 milljónir dollara að meðtalinni markaðssetningu.


Það er því ljóst að um allt aðra stærðargráðu er að ræða.


Dýrari en nokkur önnur kvikmynd, þáttaröð eða hljómplata


Til samanburðar getum við áætlað framleiðslukostnað annarrar afþreyingar. Fjárhæðir eru í milljörðum króna, á verðlagi 2026.


Samanburður á dýrustu afþreyingarvörum sögunnar

Það stefnir í að þegar leikurinn lítur loks dagsins ljós verði hann sá dýrasti sem framleiddur hefur verið og mun dýrari en Call of Duty - Black Ops Cold War. Að líkindum er Star Wars myndin The Force Awakens dýrust allra kvikmynda á verðlagi dagsins í dag en erfitt getur reynst að áætla heildarkostnað kvikmynda vegna þess að aðgengi að bókhaldsgögnum er takmarkað. Þrátt fyrir umfang kvikmyndaiðnaðins eru þær dýrustu varla hálfdrættingur á við GTA 6.



Fyrsta þáttaröð Lord of the Rings þáttanna Rings of Power er að líkindum sú dýrasta sem framleidd hefur verið, en auk þess sem framleiðslukostnaður var afar hár kostaði líka sitt að fá heimild til að gera þætti úr heimi Lord of the Rings, eða hátt í 40 milljarða króna.



Í bókinni Peningar er fjallað um gerð hljómplötu Michael Jackson, Invincible. Þar var kostnaður nær hömlulaus, en samt víðsfjarri því sem hér er til umræðu.


Hvernig er hægt að réttlæta kostnaðinn?


Sagði ekki einhver að það kostaði peninga að græða peninga? Strauss Zelnick, forstjóri Take-Two, hefur sjálfur talað um að eðlilegt verð fyrir tölvuleiki sé á bilinu 70–80 dollarar (9-10 þúsund krónur) og neitað fullyrðingum þess efnis að hann gæti kostað um 100 dollara. Ekkert hefur þó verið gefið út varðandi endanlegt verð leiksins. Það er alls ekki útilokað að hann verði dýrari og þá verður einnig hægt að verja mun hærri fjárhæðum með kaupum á hinum ýmsu viðbótum.


Forveri leiksins, GTA 5, hefur selst í um 225 milljónum eintaka og seldist fyrir milljarð dollara fyrstu þrjá dagana. Enn eru notendur að greiða fyrir viðbætur og aðgengi að leiknum og eru heildartekjur hans taldar nema um 10 milljörðum dollara, eða 1.200 milljörðum íslenskra króna. Leikurinn er 13 ára gamall en skilar þó um 150 milljónum íslenskra króna í tekjur á degi hverjum. Þó ber að taka fram að um er að ræða hráar tekjur, ekki hagnað.


Tekjumódelið hefur því sannað sig og nú er komið að næsta leik.


Heilmiklar væntingar


Skjámynd úr leiknum

Það vantar ekki væntingarnar. Greinendur hafa leyft sér að spá því að leikurinn gæti selst í yfir 25 milljónum eintaka á fyrsta sólarhringnum, fyrir um 2 milljarða dollara. Til samanburðar seldist GTA 5 í rúmlega 11 milljónum eintaka á fyrsta degi árið 2013 og skilaði um 800 milljónum dollara í tekjur þann dag.


Það er auðvitað rétt að taka svona spám með fyrirvara, en þekking greinenda á tölvuleikjaiðnaðinum, einkum á þekktu vörumerkjunum, er allt önnur og betri en á árum áður. Fjárfestingasjóðurinn Konvoy, sem sérhæfir sig í leikjaiðnaðinum, hefur spáð því að GTA 6 geti skilað tekjum sem jafngilda framleiðslukostnaði á mjög skömmum tíma og jafnvel milljörðum dollara á fyrstu vikunum. Sjóðurinn áætlar að framleiðendur hafi aflað tekna sem dekki allan kostnað leiksins (sem þeir áætla um 2 milljarða dollara) á innan við mánuði. Fyrstu tvo mánuðina verði tekjur af sölu leiksins og áskriftum tengdum honum komnar í tæpa 8 milljarða dollara. Spá þeirra er þó í bjartari kantinum samanborið við aðra greinendur, en allir áætla þó að leikurinn verði orðinn arðbær innan fárra vikna frá útgáfu.


Ef...


Það er alltaf þetta stóra „ef“. Leikurinn lítur heldur betur vel út, en það er eins gott að hann verði skemmtilegur. Ef hann verður skemmtilegur eru líkur á að hér verði jafnvel um að ræða arðbærustu afþreyingarvöru sögunnar, ekki bara þá dýrustu.



bottom of page