top of page

Hagtölur á mannamáli

Hver er verðbólgan núna? Hvað eru stýrivextir háir í samanburði við nágrannalöndin? Og hvað kostar fermetrinn í þínu póstnúmeri?

​

Hér eru helstu hagtölur Íslands á einum stað, uppfærðar sjálfkrafa um leið og nýjar tölur eru birtar. Þú sérð verðbólgu með og án húsnæðis, stýrivexti, atvinnuleysi, launaþróun og kaupmátt, og hvernig íbúðaverð hefur þróast, allt niður á einstök póstnúmer. Stýrivextir og verðbólga eru líka borin saman við Norðurlöndin, Bretland og Bandaríkin.​

PXL_20230809_085205831.jpg

Fyrirvari

Tölurnar á þessari síðu eru sóttar sjálfkrafa frá opinberum aðilum: Hagstofu Íslands, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (kaupskrá fasteigna), Alþjóðagreiðslubankanum (BIS), Seðlabanka Evrópu, Eurostat, bresku hagstofunni (ONS) og bandarísku vinnumálastofnuninni (BLS). Hver tala er sú nýjasta sem birt hefur verið og miðast við þann tíma sem tilgreindur er við hana. Hagtölur eru gefnar út misoft, svo sumar geta verið nokkurra vikna eða mánaða gamlar. Upprunalegu aðilarnir endurskoða þær stundum eftir á.

​

Fasteignaverð eftir póstnúmerum er miðgildi seldra íbúða samkvæmt kaupskrá. Það tekur ekki tillit til stærðar, aldurs eða ástands eigna og getur sveiflast mikið þar sem fáar íbúðir seljast. Það er ekki verðmat á einstökum eignum.

Samanburður við önnur lönd byggir á samræmdum mælikvörðum þar sem það er hægt, en aðferðir landanna eru ekki alltaf þær sömu.

​

Þó allt kapp sé lagt á að birta réttar upplýsingar getur komið fyrir að tölur uppfærist ekki eða birtist rangt vegna breytinga eða truflana hjá upprunalegum aðilum. Síðan er eingöngu til fróðleiks og telst ekki fjármálaráðgjöf. Áður en mikilvægar ákvarðanir eru teknar er rétt að kynna sér upprunalegu gögnin eða leita ráðgjafar.

bottom of page

Viltu sjá meira frá Birni Berg í Google-leit?

Veldu Björn Berg sem heimild hjá Google ↗