Vandað og ítarlegt námskeið á netinu
þegar og á þeim hraða sem þér hentar
Við viljum öll hafa það gott fjárhagslega.
Til að svo megi verða á lífeyrisaldri reynir á að teknar séu réttar ákvarðanir þegar lífeyrir er sóttur. Lífeyristöku þarf að sníða að stöðu og smekk hvers og eins og þar sem um mikil værðmæti er að ræða borgar sig að vanda vel til verka.
Björn Berg hefur haldið hundruð fyrirlestra og námskeiða um lífeyrismál, skrifað um þau fjölda greina og verið virkur í umræðu um lífeyris- og starfslokamál um árabil.
Á þessu nýja og ítarlega vefnámskeiði er farið yfir flókið kerfi á mannamáli og verða þátttakendur full færir um að undirbúa sín starfslok með þeim hætti sem þeim hentar best.
Námskeiðsgjald: 19.500 kr
Færðu styrk frá stéttarfélaginu þínu?
Stéttarfélög veita mörg styrki fyrir allt að 90% námskeiðsgjalda. Kannaðu rétt þinn hjá þínu stéttarfélagi.
Skráning
Skráðu þig til þátttöku hér að neðan. Þú færð sendan tölvupóst með reikningi og í kjölfar greiðslu færð þú aðgang að námskeiðinu í 12 mánuði.
Kaflar námskeiðsins
-
Um undirbúning starfsloka
-
Skattar
-
Lífeyrissjóðurinn okkar
-
Séreign
-
Öryggi og erfðamál
-
Almannatryggingar
-
Hvernig ætlar þú að hafa það?
Yfir 3 klst af myndböndum
Próf úr efni kafla
Umfangsmikið ítarefni
Aðgengilegt í 12 mánuði
Um námskeiðið
Vefnámskeiðið Lífeyrismál og starfslok fer fram í námskerfi Thinkific.
Þar fylgist þú með fyrirlestrum, kynnir þér ítarefni úr hverjum kafla og hefur aðgengi að fjölda gagnlegra hlekkja svo þú getir kynnt þér málin betur og fengið betri yfirsýn yfir lífeyrismálin þín.
Í lok kafla er lítið próf, svo þú gangir úr skugga um að ekkert mikilvægt hafi farið framhjá þér.
Þú hefur aðgengi að námskeiðinu í 12 mánuði og sækir það þegar og á þeim hraða sem þér hentar. Námskeiðinu fylgir hentugur tékklisti sem gott er að hafa við höndina við undirbúning starfsloka.
Dæmi um efnistök
Hvenær og hvernig hentar að sækja lífeyrisgreiðslur?
Hvað með viðbótarlífeyri og tilgreinda séreign?
Hvernig verða greiðslur og skerðingar almannatrygginga?
Er skynsamlegt að sækja hálfan lífeyri?
Hvaða skatta kem ég til með að greiða?
Þarf ég að gera erfðaskrá og umboð?
Hvernig deili ég lífeyri með makanum mínum?
Viltu bóka fleiri en einn þátttakanda?
Hafðu samband og við skráum þinn hóp fljótt og örugglega.
Fleiri námskeið og fyrirlestrar
Gagnlegt og hvetjandi námskeið fyrir yngri en 60 ára
Búum okkur undir bjarta fjárhagslega framtíð
Ítarlegt námskeið um allt sem nauðsynlegt er að vita um undirbúning starfsloka
Náðu góðum tökum á fjármálunum og lagaðu heimilisfjármálin að aðstæðum hverju sinni
Einfalt námskeið um grunnatriðin í ávöxtun fjármuna og uppbyggingu eignasafna
Allt sem þú þarft að vita áður en þú hefst handa við fjárfestingar á hlutabréfamarkaði.
Gagnleg fræðsla um sparnað til útborgunar, lántöku og kaup á fyrstu íbúð
Námskeið í samstarfi við Pál Kristjánsson, hæstaréttarlögmann, um lagalega og fjárhagslega stöðu sambúðarfólks sem ekki er gift
Námskeið í samstarfi við Pál Kristjánsson, hæstaréttarlögmann. Farið er með skýrum hætti yfir hvernig undið er ofan af eigin rekstri og hvað hafa þarf í huga varðandi lífeyrismál og starfslok
Einfalt og skýrt námskeið fyrir innflytjendur.
Rætt er um íslenskt efnahagskerfi, heimilisfjármál, sparnað, skuldir, lífeyrismál og fleira sem nauðsynlegt er að þekkja hér á landi
Létt og skemmtilegt erindi um rangan fréttaflutning vegna ónákvæmrar túlkunar gagna