top of page

Hjónaband, sambúð og peningar: Hvað þarf að vita?

Writer: Björn Berg Gunnarsson
Björn Berg Gunnarsson
11 minutes ago
4 min read
Par á Íslandi

Það er kannski ekki mikil stemning fyrir því, en það þarf að ræða hitt og þetta. Þegar fólk hefur sambúð eða giftir sig eru flestir væntanlega með hugann við að velja réttu tertuna í brúðkaupið eða sófa í stofuna. Minna fer fyrir umræðu um hvað verði um eignirnar ef sambandinu verður slitið.


Í nýjasta þætti Spurt og svarað var rætt við Pál Kristjánsson, hæstaréttarlögmann, um fjárhagslegar hliðar sambúðar og hjúskapar. Þar voru kaupmálar og eignarhlutir við fasteignakaup meðal annars til umræðu. Það eru mál sem eflaust getur verið erfitt og óþægilegt að ræða, en skipta verulegu máli þegar á reynir. Það er nefnilega mun auðveldara að ganga frá nauðsynlegum pappírum þegar allt leikur í lyndi en þegar upp úr sýður.




Er ekki allt bara 50/50 þegar fólk giftir sig?


„Mitt er þitt og þitt er mitt“ er sagt þegar fólk er gefið saman. En kannski eru málin ekki alltaf svo einföld. Meginreglan er vissulega sú að við skilnað komi hjúskapareignir til helmingaskipta. Það gildir þó ekki um séreignarsparnað og lífeyrisréttindi þótt hægt sé að óska eftir jafnri ávinnslu lífeyris eða skiptingu á uppsöfnuðum réttindum, að uppfylltum tilteknumi skilyrðum.


Kaupmáli


Vilji fólk halda eignum utan hefðbundinna helmingaskipta er algengt að gerður sé kaupmáli. Með honum er ákveðið að tilteknar eignir séu séreign annars makans og verði því ekki skipt með sama hætti og hjúskapareign, komi til dæmis til skilnaðar. Kaupmáli er ekki tilkynning sem hripuð er niður á servíettu við eldhúsborðið, heldur þarf að uppfylla ákveðnar formkröfur og er oftar en ekki útbúinn af lögmanni.


Páll bendir á nokkuð áhugavert í þessu samhengi. Fólk veigrar sér gjarnan við að ræða kaupmála í aðdraganda brúðkaups. Það getur þótt yfirmáta órómantískt og jafnvel vakið grunsemdir um að annar aðilinn hafi ekki fulla trú á sambandinu.


En er það virkilega svo? Er ástæða til að óttast slíka umræðu? Er það ekki miklu frekar merki um heilbrigt samband að hægt sé að ræða opinskátt um fjármál?


Hlaðvarpið Spurt og svarað með Birni Berg

Gagnlegt og skemmtilegt hlaðvarp um fjármál


Viltu læra meira um fjármál og peninga? Í þættinum Spurt og svarað ræðir Björn Berg um hinar ýmsu hliðar fjármála og svarar spurningum hlustenda.​



Sambúð er ekki það sama og hjónaband


Þegar fólk býr saman án þess að vera gift gildir ekki sama reglan um helmingaskipti eigna. Þá á hvor aðili þær eignir sem hann hefur aflað sér, en við sambúðarslit getur vissulega verið tekið tillit til fjárhagslegs framlags og annarra þátta. Lykilatriðið er þó að sambúð getur verið nokkuð flókin í fjárhagslegu samhengi.


Einkum er mikilvægt að vanda sig við kaup á fasteign. Segjum að par kaupi saman íbúð þar sem annar aðilinn leggur fram 75% útborgunar og hinn 25%. Þau taka lán fyrir afgangnum og skipta því til helminga. Séu þau gift og enginn kaupmáli gerður gildir almennt sú regla að hjúskapareignir koma til helmingaskipta við skilnað, óháð því hvort framlög þeirra til kaupanna hafi verið jöfn. Séu þau hins vegar í óvígðri sambúð gildir sú regla ekki og því er sérstaklega mikilvægt að semja um eignahlut hvors um sig og skrá hann með réttum hætti.


En svo þarf að hugsa lengra. Hvað ef annar aðilinn greiðir lánið hraðar niður en hinn? Dæmi um það getur verið notkun skattfrjálsrar ráðstöfunar viðbótarlífeyrissparnaðar eða reglulegar viðbótargreiðslur. Slíkar greiðslur breyta ekki sjálfkrafa skráðum eignarhlutum. Þær geta aukið eigið fé beggja aðila án þess að sá sem greiðir meira eignist sjálfkrafa stærri hlut í fasteigninni. Og það er ekki endilega sanngjarnt. Eins og fram kom í máli Páls er hægt að semja breytingar á eignarhlutum og skrá þær með afsali, en hafa þarf í huga að því getur fylgt kostnaður. Þannig er stimpilgjald (skattur) vegna yfirfærslu á eignarhlut fasteignar almennt 0,8% af fasteignamati þess hluta sem er yfirfærður, þegar kaupandi er einstaklingu þegar þetta er skrifað. Undantekningar geta þó átt við.


Eins og sést má spara sér bæði kostnað og vandræði með því að ræða þessi mál snemma og áður en skrifað er undir kaupsamning.


Enginn arfur í sambúð


Við þetta má bæta að með hjónabandi breytist réttur fólks til erfða. Sambúðarmakar erfa ekki sjálfkrafa hvor annan, en geta þó eftir atvikum átt rétt á makalífeyri úr lífeyrissjóði falli hinn frá. Í hjónabandi verður hins vegar skylduerfingi, sem er mikilvægt öryggisatriði.


Vissulega má ráðstafa eignum með erfðaskrá, en því eru takmörk sett. Sem dæmi má nefna að eigi einstaklingur börn og sé í óvígðri sambúð getur hann að hámarki ánafnað sambúðarmaka sínum þriðjung eigna sinna með erfðaskrá.


Kynnum okkur málin


Mikilvægt er að ræða mál sem þessi við sérfræðinga. Lögmenn, svo sem Páll, geta aðstoðað fólk við að átta sig á mögulegri þörf fyrir gerð samkomulags og formlegra pappíra. Þá geta þeir útbúið erfðaskrár, kaupmála, samninga og fleira sem óskað er eftir.


Upplýsingar um hin ýmsu mál má auk þess nálgast hjá sýslumannsembættum og ef áhugi er á að skoða mögulega skiptingu á lífeyri er rætt um þau mál á námskeiðunum Lífeyrismál og starfslok og Lífeyrismál á öllum aldri.


Ástæða er til að taka sérstaklega fram að hættulegt getur reynst að sækja sér upplýsingar um fjármál á kaffistofunni. Fólk ætti ekki að herma eftir vinum nema að vel athuguðu máli og eftir að hafa kynnt sér málin vel annars staðar. Því miður má rekja allt of mörg mistök í lífeyrismálum og öðrum mikilvægum málum er varða fjárhag okkar til fljótfærni og þess að hermt sé eftir öðrum.


Athugið að Björn er ekki sérfræðingur í lagalegri hlið hjúskapar og sambúðar og veitir ekki þjónustu á því sviði. Lesendur er hvattir til að leita sér ráðgjafar hjá sérfræðingum. Upplýsingar sem hér koma fram geta breyst og mikilvægt er að kanna hvaða reglur gilda hverju sinni áður en ákvarðanir eru teknar.

Betri yfirsýn yfir fjármálin

Skráðu þig á póstlista og fáðu send ókeypis fréttabréf um persónuleg fjármál og lífeyrismál. Fáðu sendan gagnlegan fróðleik sem hjálpar þér að taka betri fjárhagslegar ákvarðanir.

Persónuleg fjármál

Takk fyrir að skrá þig

Lífeyrismál

Takk fyrir að skrá þig

Um Björn Berg

Björn Berg Gunnarsson er sjálfstæður fjármálaráðgjafi og fyrirlesari í Reykjavík.

Hann hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 2007, þar af sem fræðslustjóri og deildarstjóri greiningardeildar Íslandsbanka. Björn rekur ráðgjafarþjónustuna BB ráðgjöf, býður upp á námskeið og fyrirlestra fyrir vinnustaði og einstaklinga og er reglulegur álitsgjafi um fjármál í íslenskum fjölmiðlum. Hann er höfundur bókarinnar Peningar (2021).

bottom of page

Viltu sjá meira frá Birni Berg í Google-leit?

Veldu Björn Berg sem heimild hjá Google ↗