top of page

Má gefa börnunum sínum peninga?

Writer: Björn Berg Gunnarsson
Björn Berg Gunnarsson
6 minutes ago
2 min read
Í miðborg Reykjavíkur

Björn Berg svarar spurningum lesenda Vísis


71 árs kona spyrr:

Má maður gefa börnunum sínum 2 milljónir og hvernig er það skattlagt?

Björn Berg svarar lesendum Vísis

Þetta er algeng spurning, en því miður eru þessi mál afar sérkennileg hér á landi. Ég vísa alltaf beint á endurskoðendur eða skattalögfræðinga þegar fólk hefur áhuga á að gefa börnunum sínum peningagjafir, enda er mikilvægt að vera réttu megin við lögin og það getur verið snúið að átta sig á hvar mörkin liggja.


Hvað má gefa mikið?


Í stuttu máli eru aðeins tækifærisgjafir skattfrjálsar hér á landi. Enginn virðist þó vita hve dýrar þær mega vera eða hve háar fjárhæðir foreldrar mega gefa börnunum sínum. Auðvitað er verulega óþægilegt að fá ekki að vita nákvæmlega hvað skattayfirvöld telja tækifærisgjöf, en þannig er þetta nú.


Þetta veldur því að um samfélagið læðist hvísluleikur þar sem fólk segist hafa heyrt allar mögulegar fjárhæðir og eins og svo oft áður verður kaffistofan stórhættuleg, ætli fólk að sækja sér ábyrgar upplýsingar þangað.


Hvernig er gjöfin skattlögð?


Þú nefnir tvær milljónir króna. Ef við gefum okkur að skatturinn telji það of ríflega tækifærisgjöf verða börnin rukkuð um tekjuskatt og útsvar, sem getur verið svimandi hátt hlutfall, eða allt að 46,29%.


Íslenskir peningaseðlar

Tekur því að spara á verðtryggðri bók?


64 ára karlmaður spyr hvort hægt sé að hagnast á verðtryggðri bankabók þegar skattur er dreginn af nafnávöxtun



Því er yfirleitt bent á fyrirframgreiddan arf, en þér er velkomið að gefa börnunum þínum peninga með þeim hætti, ef greiddur er 10% erfðafjárskattur. Ágætt er að hafa í huga að við fyrirframgreiðslu gilda ekki þau skattfrelsismörk sem fylgja uppgjöri dánarbús, en það er þó skárra að ríkið hirði 10% en nær helming gjafarinnar. Á fáum gjafapökkum stendur nefnilega „Frá mömmu til elsku Evu minnar og Daða fjármálaráðherra“.


Góðar upplýsingar um fyrirframgreiddan arf má nálgast hér. Einnig er gott að leita til lögmanna eða annarra sem sérhæfa sig í erfðamálum.


Hvers vegna má ekki gefa peningana sína?


Erfitt er að átta sig á því hvers vegna foreldrum er gert svo dýrt að aðstoða börnin sína, hvert svo sem tilefnið kann að vera. Svona er þetta ekki í löndunum í kringum okkur. Norðmenn greiða engan skatt af peningagjöfum, frekar en í Svíþjóð. Í Danmörku má hvert foreldri færa hverju barni sínu allt að eina og hálfa milljón króna á ári án skatts og í Finnlandi má hvert barn fá um 1,1 milljón króna frá foreldrum sínum á þriggja ára fresti. Hærri fjárhæðir kosta 8% skatt (í stað allt að 46,29% hér).


Farið yfir fjármálin

Námskeið fyrir hópa - Lífeyrismál á öllum aldri


Bókaðu námskeið fyrir fyrirlestur fyrir þinn hóp.



Í Bandaríkjunum má einstaklingur fá um 2,4 milljónir króna á ári í gjöf, en þar eru ævilöng skattfrelsismörk svo há að fæstir verða nokkru sinni skattlagðir vegna gjafa.


Farðu varlega


Ég er ekki sérfræðingur í skattamálum en hef rætt við nógu marga endurskoðendur og lögmenn til að átta mig á hve mikilvægt það er að fólk í þinni stöðu vandi sig.


Ráðfærðu þig endilega við reyndan sérfræðing sem sér til þess að allt sé gert með réttum og löglegum hætti.


Betri yfirsýn yfir fjármálin

Skráðu þig á póstlista og fáðu send ókeypis fréttabréf um persónuleg fjármál og lífeyrismál. Fáðu sendan gagnlegan fróðleik sem hjálpar þér að taka betri fjárhagslegar ákvarðanir.

Persónuleg fjármál

Takk fyrir að skrá þig

Lífeyrismál

Takk fyrir að skrá þig

Um Björn Berg

Björn Berg Gunnarsson er sjálfstæður fjármálaráðgjafi og fyrirlesari í Reykjavík.

Hann hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 2007, þar af sem fræðslustjóri og deildarstjóri greiningardeildar Íslandsbanka. Björn rekur ráðgjafarþjónustuna BB rágjöf, býður upp á námskeið og fyrirlestra fyrir vinnustaði og einstaklinga og er reglulegur álitsgjafi um fjármál í íslenskum fjölmiðlum. Hann er höfundur bókarinnar Peningar (2021).

bottom of page