top of page

Hvað á að gera við fermingarpeningana?

  • Writer: Björn Berg Gunnarsson
    Björn Berg Gunnarsson
  • 2 days ago
  • 3 min read
Stelpur í símanum

Björn Berg svarar spurningum lesenda Vísis


Fertug kona spyr:

Við erum að ferma dóttur okkar og veltum fyrir okkur hvað við eigum að gefa henni og hvað gera eigi við þá peninga sem hún mun fá að gjöf?

Björn Berg svarar lesendum Vísis

Þessu velta margir fyrir sér og getur verið hausverkur fyrir foreldra. Oft er allt of háum fjárhæðum valið til veisluhalda og miklar áhyggjur af samkeppni og samanburði við aðra þegar kemur að fermingargjöfum.


Hvað er ásættanlegt?


Hér erum við að ræða smekksatriði og ég veit að áherslur fólks varðandi fermingar geta verið mjög misjafnar. Mín skoðun er þó sú að eitt sé mikilvægt að ákveða. Við ætlum ekki að bera okkur saman við aðrar fjölskyldur. Við gefum barninu það sem okkur þykir henta, en það er engin ástæða til að ætla að slíkt þurfi að vera dýrt. Hvað mun gleðja barnið og gagnast því? Þurfa það að vera peningar? Hvað með upplifun eða leiðsögn? Ykkur ber ekki skylda til að herma eftir öðrum.


Á þessum árstíma fer árleg umræða af stað á samfélagsmiðlum. „Hvað eruð þið að gefa mikinn pening svona almennt í fermingargjöf?“ las ég á einum stað. Einnig „Hvað mynduð þið segja að væri ásættanleg fermingargjöf?“. Þarna er fólk að biðja um leiðbeiningar svo það geti hermt eftir því sem aðrir hafa sennilega hermt upp eftir öðrum sem höfðu spurt félagana á kaffistofunni og þar fram eftir götunum. 14 ára börn taka þannig við fjárhæðum sem ákveðnar voru svo enginn móðgist eða út frá því sem öðru fólki finnst ásættanlegt.


Við ætlum ekki að nálgast fjármál með þeim hætti, en aðrir munu gera það og því er um að gera að huga vel að þeim fjármunum sem dóttir ykkar mun fá gefins.


Fréttabréf á bjornberg.is

Foreldranámskeið um fjármál barna og unglinga


Gagnlegt námskeið fyrir hópa og vinnustaði



Hvar komum við fermingarpeningunum fyrir?


Hart er barist um sparnað fermingarbarna. Bankar ganga jafnvel svo langt að borga fyrir að innlögn inn á reikninga eða í sjóði, sem gefur til kynna að þeir telji sig geta hagnast verulega af viðskiptasambandi við barnið til lengri tíma litið.


Rétt eins og varðandi fjáhæðirnar er erfitt að alhæfa um heppilegustu ávöxtunarleið sparnaðar fermingarbarna, enda er slíkt sannarlega smekksatriði. Ítarlega var rætt um sparnað barna í svari við annarri spurningu hér á vefnum:

Fréttabréf á bjornberg.is

Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best?



Ég legg þó áherslu á að tilefni sem þetta sé nýtt til fullnustu. Það þarf sannarlega að hafa vit fyrir barni á fermingaraldri, en hafðu dóttur þína þó með í ráðum. Byrjið á að ræða um það sem þið eruð eflaust sammála um. Svo sem að svona gjafir muni ekki berast aftur og þið viljið báðar að þær nýtist henni sem best við að hafa það gott fjárhagslega og geta keypt sér íbúð þegar hún verður eldri. Þá ræðið þið hvort skynsamlegt sé að skipta sparnaðinum upp. Verður hann allur lagður fyrir til íbúðarkaupa eða verður hluti hans tekinn frá fyrir kaupum eða upplifun sem gleður hana í dag? Hvað kostar slíkt og hvaða áhrif mun það hafa á langtímasparnaðinn? Með þessu kennir þú henni að forgangsraða, reikna og vega og meta ólík fjárhagsleg markmið.


Að lokum veljið þið hentuga ávöxtunarleið. Í sameiningu takið þið ákvörðun um hvort og þá hvaða bankabók hentar, hvort ávaxtað skuli í sjóðum eða með öðrum hætti. Rökstyðjið þá ákvörðun og kynnið ykkur ólíka kosti.


Barnið þarf að hlusta


Vandaðu samskiptin við barnið. Þetta er góður tímapunktur til að hefja opið og hreinskiptið samtal um fjármál og þá er lykilatriði að barnið hlusti á þig.


Ég vona að þetta gangi vel hjá ykkur!



Fréttabréf á bjornberg.is

Fáðu fróðleik sendan í fréttabréfum

Það kostar ekkert að skrá sig á póstlista og fá send fréttabréf um persónuleg fjármál og lífeyrismál.



Um Björn Berg

Björn Berg Gunnarsson er sjálfstæður fjármálaráðgjafi og fyrirlesari í Reykjavík.

Hann hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 2007, þar af sem fræðslustjóri og deildarstjóri greiningardeildar Íslandsbanka. Björn rekur ráðgjafarþjónustuna BB rágjöf, býður upp á námskeið og fyrirlestra fyrir vinnustaði og einstaklinga og er reglulegur álitsgjafi um fjármál í íslenskum fjölmiðlum. Hann er höfundur bókarinnar Peningar (2021).

bottom of page