Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi?
- Björn Berg Gunnarsson

- 11 minutes ago
- 3 min read

Björn Berg svarar spurningum lesenda Vísis
55 ára kona spyr:
Er alveg ómögulegt að geyma sparnað inn á bankareikningi? Mér finnst allir vera að tala um hlutabréf og aðrar áhættufjárfestingar.
Ég hef kannski minnst á það áður, en kaffistofan getur verið varasöm. Þótt allir séu að tala um hlutabréf og aðrar áhættufjárfestingar ætti það ekki að hafa nokkur áhrif á þær ákvarðanir sem þú tekur um þinn sparnað. Það virðast líka allir vera með bílalán og dreifa greiðslum, en það er það síðasta sem þú vilt blanda inn í þín heimilisfjármál.
Ekki byggja ákvarðanir um ávöxtun fjármuna á hópþrýstingi eða þeirri tilfinningu að þú sért að missa af einhverju. Við höfum öll misjafnan smekk, áhættuþol og reynslu og það sem hentar einum gæti komið öðrum í klandur.
Kostir bankareikninga
Þú þekkir bankabókina þína. Hún skilar nokkuð stöðugri ávöxtun án kostnaðar og fátt ætti að koma þér á óvart. Þetta er ljómandi hentugt þegar ávaxta á fé til skemmri tíma, en auk þess er hægt að festa betri vexti til nokkurra mánaða í senn og sækja verðtryggingu á óvissutímum. Svo vill til að vextir sparnaðarreikninga eru óvenju háir þessa dagana og því ekki skrítið að stór hluti sparnaðar landsmanna hafi um nokkuð skeið verið geymdur á hávaxtareikningum.
En hvað um ókostina?
Til langs tíma litið væntum við þess ekki að fá góða ávöxtun á bankareikningum. Sögulega hefur raunávöxtun þeirra verið afar lítil og þar sem vextir eru greiddir út reglulega getur hár fjármagnstekjuskattur hoggið verulega í ávöxtunina, eins og rætt var nýlega á þessum vettvangi.
Tekur því að spara á verðtryggðri bók?
64 ára karlmaður spyr hvort hægt sé að hagnast á verðtryggðri bankabók þegar skattur er dreginn af nafnávöxtun
Vegna þessarar litlu ávöxtunar leitar fólk eðlilega í aðra fjárfestingarkosti og þar eru hlutabréfin vinsæl, eins og þú hefur tekið eftir.
Hvenær henta hlutabréf?
Þú verður að ganga úr skugga um að þú hafir næga þekkingu til að taka upplýsta ákvörðun. Að mínum dómi ætti fólk ekki að fjárfesta í hlutabréfum (eða nokkru öðru) nema hafa hið minnsta grunnþekkingu á eðli slíkra fjárfestinga. Þegar þú kynnir þér markaðinn kynnist þú því sömuleiðis að honum fylgja óhjákvæmilega verðsveiflur. Verð hækkar og lækkar, stundum mikið og hratt. Það getur verið óþægilegt og við höfum alls ekki öll magann í slíkt. Það er fullkomlega eðlilegt og mikilvægt að átta sig á.
Væntingar okkar um ávöxtun eru mun meiri á hlutabréfamarkaði en á bankareikningi, en það getur tekið fjárfestinguna verulegan tíma að svara þeim væntingum. Því er mikilvægt að ákveðnar séu leikreglur áður en ráðist er í fjárfestingar. Dæmi um slíkar reglur eru að ákveða til hve langs tíma skal fjárfest. Ef þú ætlar að leggja fyrir til 20 ára vilt þú ekki missa af langtímaávöxtun vegna þess að þú fékkst í magann í niðursveiflu. Þetta hljómar sjálfsagt, en það er raunverulegt vandamál hve margir einstaklingar kaupa hlutabréf sem langtímafjárfestingu en velta sér svo heilmikið upp úr verðsveiflum innan dags, sem engu máli skipta þegar upp er staðið.
Ekki halda að þú getir gert betur en markaðurinn með því að kaupa og selja á réttum tíma. Flestir ná þvert á móti árangri með því að huga ekki að tímasetningum heldur kaupa bréfin og láta þau í friði. Hlutabréfaviðskipti eru ekki fjárhættuspil. Ekki halda að þú þurfir að vera heppin, trúa á lukkutölur eða nýta þér töfralausnir til að ávaxta fé vel. Yfirleitt truflar allt slíkt og það eina sem þarf er þolinmæði.
Hafðu kostnað sömuleiðis í huga. Hlutabréfasjóðir eru misdýrir og greiða þarf jafnvel bæði kaupþóknun og árlegt umsjónargjald. Stökum hlutabréfaviðskiptum fylgir auk þess kostnaður sem fljótlega getur dregið úr ávöxtun okkar.
Námskeið fyrir hópa - Hlutabréf fyrir byrjendur
Bókaðu námskeið fyrir fyrirlestur fyrir þinn hóp.
Ráðfærðu þig við sérfræðingana
Það getur verið gott að setjast niður með sérfræðingi í fjármálastofnun. Hann getur kennt þér sitthvað um það úrval sem í boði er, upplýst þig um kostnað og aðstoðað við fjárfestingarnar. En ekki fjárfesta vegna þess að hann segir þér það. Heldur vegna þess að þú hefur tekið upplýsta og vandaða ákvörðun um hvar þú ætlar að koma þínum fjármunum fyrir, með hvaða hætti og hvaða leikreglur skuli gilda.
Hvað er markmiðið?
Ef þú vilt byggja upp eignir til langs tíma og freista þess að ná sem bestri ávöxtun er eðlilegt að horft sé til hlutabréfa. Mundu bara að undirbúa þig vel, lesa þér til og ræða við sérfræðinga áður en þú tekur ákvörðun. Það er engin skömm í því að segja pass í bili og við vissar aðstæður henta hlutabréf kannski alls ekki.
Fáðu fróðleik sendan í fréttabréfum
Það kostar ekkert að skrá sig á póstlista og fá send fréttabréf um persónuleg fjármál og lífeyrismál.






