
Allt um fjármál heimsmeistaramótsins
Heimsmeistaramótið í knattspyrnu 2026 verður það langstærsta sem haldið hefur verið.
Aldrei höfum við séð neitt í líkingu við þær fjárhæðir sem skipta munu um hendur og verða ný viðmið sett hvað stórmót í íþróttum varðar.
Hér lítum við á fjármál þessa merkilega móts og setjum í sögulegt samhengi.
Björn Berg
Upphitun fyrir HM í fótbolta
Heimsmeistaramótið í knattspyrnu 2026 verður það langstærsta sem haldið hefur verið.
Í aðdraganda móts verður boðið upp á létt og skemmtilegt erindi fyrir vinnustaði og hópa. Kjörið fyrir morgun- eða hádegisfundi.
Leikvangar HM 2026 gætu tekið við nær tvöfalt fleiri áhorfendum en sóttu mótið í Bandaríkjunum 1994.
Þar með er þó aðeins hálf sagan sögð því fjöldi leikja er mun meiri.
Að jafnaði gætu um 62.500 manns sótt leiki mótsins, sem yrði þá næstbesta sótt heimsmeistaramót frá upphafi.
.png)

Dallas
AT&T Stadium
92.967
2009
217 ma.kr.

New Jersey
MetLife Stadium
87.157
2010
298 ma.kr.

Kansas City
Arrowhead Stadium
76.640
1972
112 ma.kr.

Atlanta
Mercedes-Benz Stadium
75.000
2017
266 ma.kr.

Houston
NRG Stadium
72.220
2002
80 ma.kr.

San Francisco
Levi´s Stadium
70.909
2014
257 ma.kr.

Los Angeles
SoFi Stadium
70.240
2020
938 ma.kr.

Philadelphia
Lincoln Financial Field
69.328
2003
135 ma.kr.

Seattle
Lumen Field
69.000
2002
97 ma.kr.

Miami
Hard Rock Stadium
67.518
1987
102 ma.kr.

Boston
Gillette Stadium
63.815
2002
106 ma.kr.

Vancouver
BC Place
54.000
1983
96 ma.kr.

Toronto
BMO Stadium
45.500
2007
42 ma.kr.

Mexíkóborg
Estadio Azteca
87.523
1966
48 ma.kr.

Monterrey
Estadio BBVA
53.460
2015
34 ma.kr.

Guadalajara
Estadio Akron
48.071
2010
37 ma.kr.
Sætafjöldi
.png)
Endurbætur sem hlutfall af
heildarkostnaði leikvangs
.png)
Engir nýir vellir
Engir knattspyrnuvellir verða reistir fyrir mótið, en þó hefur töluverðum fjárhæðum verið varið í að gera leikvanga og aðstöðu þar um kring klára fyrir mótið.
Breytingar eru sennilega mestar á Bank of Montréal vellinum í Toronto. Þar hefur sætum verið fjölgað um tæp 18.000, en þau verða aðl líkindum fjarlægð að loknu móti. Skipt verður um gras, varamannaskýli og flóðljós en einnig verða umtalsverðar umbætur gerðar á móttöku gesta og veitingasölu. Kosta breytingarnar ríflega 13 milljarða íslenskra króna.
Dýrustu breytingarnar verða þó á AT&T vellinum í Dallas, en áætlað er að heildarkostnaður við þær muni nema tæpum 37 milljörðum króna.
Þokkaleg nýting á fyrirliggjandi innviðum
Í samanburði við fyrri mót í Katar, Rússlandi og Brasilíu er tiltölulega sparlega farið með peninga á mótinu 2026.
Aðeins verður um meiriháttar breytingar eða framkvæmdir að ræða á fjórum völlum; í Torondo, Boston, Mexíkóborg og Vancouver.
Að jafnaði nemur kostnaður við að gera vellina klára fyrir mótið aðeins um 10% heildarkostnaðar við byggingu þeirra.
Hlutfall nýrra leikvanga og meiriháttar framkvæmda vegna HM
.png)
Dýrustu miðar í sögu HM
Tekjur FIFA af sölu miða á HM 2026 gætu orðið um fjórum sinnum hærri en í Katar 2022 og hefur miðaverð aldrei verið jafn dýrt.

Rándýrt fyrir áhorfendur
Miðaverð mótsins hefur verið harðlega gagnrýnt, en það er umtalsvert hærra en á fyrri mótum. Auk þess er það í litlu samræmi við verðið sem kynnt var þegar gestgjafarnir sóttu um að halda mótið. Á síðari stigum mótsins er verðið margfalt hærra en til stóð. Þó ber að nefna að FIFA tekur til sín allar tekjur af miðasölu.
Hér hefur verið tekið saman verð á miðum í verðflokkum 1 og 3, en fáir ódýrari miðar verða í boði. Um meðaltalsverð er að ræða, en það gæti verið enn dýrara á einstaka leiki og í endursölu.
Að þessu sinni verður endursala miða í fyrsta skipti í höndum FIFA, sem tekur þóknun af hverri endursölu.
Almennt miðaverð í svæði 1 og svæði 3
.png)
Samanburður við fyrri mót
Miðaverð hefur verið leiðrétt fyrir verðbólgu til að gera samanburðinn skýrari. Aðeins er tekið tillit til frumsölu miða í almenn sæti og hvorki er reiknað með þeim fáu miðum sem seldir hafa verið heimamönnum á lágu verði, miðum fyrir fatlaða né miðum í svítur.
Opnunarleikur
.png)
Riðlakeppni
.png)
16 liða úrslit
.png)
8 liða úrslit
.png)
Undanúrslit
.png)
Úrslitaleikur
.png)
Heimsmeistararnir fá 6,5 milljarða króna
Verðlaunafé mótsins hefur verið aukið um 34% að raunvirði frá HM í Katar. FIFA nefnir 50% aukningu, en eru þar m.a. að vísa í auknar greiðslur til félagsliða leikmanna og í tryggingasjóði vegna meiðsla á mótinu.

Ísland hefði fengið amk. 1,3 milljarða króna
Hefðum við Íslendingar tekið þátt á HM 2026 væru um 1,3 milljarðar króna þegar komnir í hús, þótt allir leikir töpuðust. Er það þó öllu minna að raunvirði en í Rússlandi 2018. Samanstendur greiðslan að 1,1 milljarðs króna greiðslu vegna þátttöku í riðlakeppni og 200 milljónum vegna undirbúnings fyrir mótið.
Stækkun verðlaunapottar mótsins felst einna helst í fjölgun liða, en verðlaunagreiðslur eftir árangri taka ekki miklum breytingum milli móta að þessu sinni.
Hefði Ísland farið alla leið hefði KSÍ fengið 6,5 milljarða króna greidda. Þess má þó geta að kaupaukagreiðslur leikmanna og lengri dvöl vestanhafs hefði eflaust aukið útgjöld knattspyrnusambandsins talsvert.
Greiðslur frá FIFA eftir árangri á HM
ma.kr.

Undirbúningsgreiðsla

Setið eftir í riðli

16 liða úrslit

8 liða úrslit

4. sæti

3. sæti

2. sæti

Heimsmeistarar

Arðbærasta heimsmeistaramót sögunnar
Það lítur út fyrir að hagnaður FIFA af mótinu muni nema hátt í 1.400 milljörðum íslenskra króna, sem slagar hátt í fjárlög íslenska ríkisins.
Er það um 30% meiri hagnaður en þegar mótið var haldið í Katar 2022 og hafði hagnaðurinn þá þegar aukist um 90% frá mótinu í Rússlandi 2018.

Leikvangar HM 2026 gætu tekið við nær tvöfalt fleiri áhorfendum en sóttu mótið í Bandaríkjunum 1994.
Þar með er þó aðeins hálf sagan sögð því fjöldi leikja er mun meiri.
Að jafnaði gætu um 62.500 manns sótt leiki mótsins, sem yrði þá næstbesta sótt heimsmeistaramót frá upphafi.
.png)
Fyrirvarar
Fyrirvari vegna fræðslu um fjármál HM
Þær upplýsingar sem hér koma fram eru ætlaðar til gamans, fróðleiks og upphitunar fyrir heimsmeistaramót karla í knattspyrnu sumarið 2026. Þær upplýsingar sem hér koma fram og deilt er annars staðar byggja á þeim upplýsingum sem fyrir lágu á þeim tíma sem þær voru birtar og taldar voru áreiðanlegar. Athygli skal þó vakin á að erfitt getur reynst að sannreina og jafnvel nálgast áreiðanlegar upplýsingar um fjármál heimsmeistaramóta. Í þeim tilvikum sem ekki tókst að sannreina gögn var byggt á fréttaflutningi og áætlunum. Ekki er hægt að ábyrgjast að allar þær upplýsingar sem hér birtast séu réttar og ekki er skylt að uppfæra það efni sem aðgengilegt er á vefnum. Þær skoðanir og upplýsingar sem finna má á vefnum geta breyst án fyrirvara.
Björn á höfundarrétt á öllu því fræðsluefni sem sett er fram, nema annað sé tekið fram.
Þessi fyrirvari á auk þess við um það efni sem deilt er á samfélagsmiðlum, svo sem YouTube, LinkedIn, X, TikTok, Instagram og Facebook
Fyrirvari vegna fjármálafræðslu
Þær upplýsingar sem fram koma í myndböndum, greinum, myndböndum, ráðgjöf, fyrirlestrum, á glærum, í viðtölum og annars staðar sem fróðleik er deilt byggja á þeim upplýsingum sem fyrir lágu á þeim tíma og taldar voru áreiðanlegar. Ekki er hægt að ábyrgjast að allar þær upplýsingar séu réttar og ekki er skylt að uppfæra það efni sem aðgengilegt er á vefnum. Þær skoðanir og upplýsingar sem finna má á vefnum geta breyst án fyrirvara.
Þær eru einungis settar fram í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem hvatningu eða ráðgjöf/ráðleggingu um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum eða þjónustu. Ekki er tekin ábyrgð á tjóni sem kann að verða vegna upplýsinga sem deilt er.
Björn á höfundarrétt á öllu því fræðsluefni sem sett er fram, nema annað sé tekið fram. Notendur vefsins eru hvattir til að kynna sér fjármálaafurðir, þjónustu og fræðslu fjármálastofnana, lífeyrissjóða og annarra þjónustuaðila til að dýpka þekkingu sína á þeim málefnum sem um er rætt.
Þessi fyrirvari á auk þess við um það efni sem deilt er á samfélagsmiðlum, svo sem YouTube, LinkedIn, X, TikTok, Instagram og Facebook










