top of page

Verðlaunaféð á HM - Hvert fara peningarnir?

  • Writer: Björn Berg Gunnarsson
    Björn Berg Gunnarsson
  • Jun 19
  • 2 min read
Gisting á HM

Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hyggst greiða um 150 milljarða króna í verðlaunafé til aðildarsambanda og sem leigu á leikmönnum til félagsliða þeirra.


Aldrei hefur verðlaunaféð verið jafn mikið, en þar sem fjöldi þátttökulanda er nú meiri en áður ætti hvert þeirra þó að eiga möguleika á svipuðum fjárhæðum eftir árangri og á undanförnum mótum.


Verðlaunafé á HM

6 milljarðar fyrir heimsmeistarana


Sigurvegarar mótsins fara heim með um 6 milljarða króna, rétt eins og í Katar, Rússlandi, Brasilíu og Suður-Afríku, ef leiðrétt er fyrir verðlagi. Óljóst er þó hve stór hluti þess fjár rennur til leikmanna, en mikil leynd hvílir almennt yfir samkomulagi leikmanna og knattspyrnusambanda um bónusgreiðslur.


Það fer þó enginn heim með skottið eitt á milli lappanna, því jafnvel þótt allir leikir tapist nema lágmarksgreiðslur um 1,2 milljörðum íslenskra króna. Þetta er meðal þess sem rætt var um í þætti Dr. Football fyrir mót.



Eftir árangri skiptist verðlaunafé mótsins þannig, í milljörðum króna:


  • 1,2 - Ef ekki er komist upp úr riðlinum

  • 1,4 - 32 liða úrslit

  • 1,8 - 16 liða úrslit

  • 2,3 - 8 liða úrslit

  • 3,3 - 4 sæti

  • 3,6 - 3. sæti

  • 4,1 - 2. sæti

  • 6,2 - Heimsmeistarar




Björn Berg heldur fyrirlestra um fjármál HM

Bókaðu skemmtilega upphitun fyrir vinnustaðinn eða hópinn þinn


Fyrirlesturinn er tilvalinn fyrir morgun- eða hádegisfundi og getur spannað frá hálftíma að klukkustund.




Greiðslur til félagsliða


Þegar leikmenn leika á HM mæta þeir ekki á æfingar hjá sínum félagsliðum og eiga þar að auki á hættu að meiðast. Því greiðir FIFA félögum tvær tegundir greiðslna vegna þátttöku leikmanna.


Club Benefit Programme eru greiðslur sem ætlað er að koma til móts við félög vegna almennrar þátttöku þeirra á mótinu.


Club Protection Programme eru greiðslur sem greiddar eru ef leikmaður meiðist, nokkurs konar trygging.


Heildarfjárhæð þessara greiðslna hefur aukist talsvert og slagar nú hátt í 50 milljarða króna.


Greiðslur til félagsliða leikmanna sem leika á HM

Að jafnaði gerir þetta um 35 milljónir króna á hvern einasta leikmann og munar um minna fyrir mörg félagslið.



Meiri verðlaun en á öllum öðrum stórmótum landsliða til samans


Þegar litið er fram hjá greiðslum til félagsliða nemur verðlaunafé vegna árangurs á mótinu um 107 milljörðum króna. Er það tvöfalt verðlaunafé Evrópumóts karla og meira en samanlagt verðlaunafé HM kvenna og Evrópu-, Asíu-, Afríku- og Ameríkumóts kvenna og karla.


Verðlaunafé HM 2026 í samanburði við önnur mót

Í þeim samanburði hefur verið áhugaverðast að fylgjast með vexti verðlaunafjár á heimsmeistaramóti kvenna. Á mótinu 2023 í Eyjaálfu nam verðlaunaféð tæpum 15 milljörðum króna en í samanburði við heildartekjur mótsins var það þrefalt hærra en á HM karla 2026.


HM2026

Betri yfirsýn yfir fjármálin

Skráðu þig á póstlista og fáðu send ókeypis fréttabréf um persónuleg fjármál og lífeyrismál. Fáðu sendan gagnlegan fróðleik sem hjálpar þér að taka betri fjárhagslegar ákvarðanir.

Persónuleg fjármál

Takk fyrir að skrá þig

Lífeyrismál

Takk fyrir að skrá þig

Um Björn Berg

Björn Berg Gunnarsson er sjálfstæður fjármálaráðgjafi og fyrirlesari í Reykjavík.

Hann hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 2007, þar af sem fræðslustjóri og deildarstjóri greiningardeildar Íslandsbanka. Björn rekur ráðgjafarþjónustuna BB rágjöf, býður upp á námskeið og fyrirlestra fyrir vinnustaði og einstaklinga og er reglulegur álitsgjafi um fjármál í íslenskum fjölmiðlum. Hann er höfundur bókarinnar Peningar (2021).

bottom of page