top of page

HM2026 - Leikvangar

  • Writer: Björn Berg Gunnarsson
    Björn Berg Gunnarsson
  • 7 hours ago
  • 3 min read
Miðaverð á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu 2026

Kröfurnar sem gerðar verða til innviða á heimsmeistaramótinu 2026 eru ekki svo frábrugðnar því sem áhugafólki hefur verið svo tíðrætt um á undanförnum mótum. Tryggja þarf samgöngur, bílastæði, aðstöðu fyrir fjölmiðla, öryggi og fleira samkvæmt stöðlum FIFA, en sömuleiðis þurfa leikvangarnir að rúma ákveðinn fjölda áhorfenda:


Sætafjöldi

Lágmarkssætafjöldi

40.000

Undanúrslitaleikir

60.000

Opnunar- og úrslitaleikir

80.000


Mótið er þó mun stærra að þessu sinni og leikvangarnir fleiri, eða 16. Áætlað er að meðalfjöldi áhorfenda á hverjum leik verði um 62.500, sem slagar hátt í mótið í Bandaríkjunum 1994, en vegna fleiri leikja gæti heildarfjöldi áhorfenda verið tvöfalt meiri en þá.


Áætlaður meðalfjöldi áhorfenda á leik
Áætlaður meðalfjöldi áhorfenda frá 1930 til 2026
Björn Berg býður upp á upphitun fyrir heimsmeistaramótið í sumar

Bókaðu skemmtilega upphitun fyrir vinnustaðinn eða hópinn þinn


Fyrirlesturinn er tilvalinn fyrir morgun- eða hádegisfundi og getur spannað frá hálftíma að klukkustund.



Engir nýir vellir að þessu sinni


Á undanförnum heimsmeistaramótum hafa strangar kröfur FIFA um stærð og aðbúnað leikvanga eðlilega vakið upp áhyggjur af notagildi þeirra í kjölfar móta. Í Brasilíu og Suður-Afríku hafa leikvangarnir orðið byrði á heimamönnum og liggja margir þeirra undir skemmdum.


Katarar höfðu enga þörf fyrir þá velli sem reistir voru fyrir síðasta móti og tóku suma þeirra í sundur að fullu eða að hluta í kjölfar þess. Þetta ætti ekki að verða vandamál á þessu móti, þar sem engir nýir vellir verða reistir fyrir mótið. Auk þess er þörfin fyrir umbætur á völlum minni en oft áður, einkum í Bandaríkjunum, þar sem aðstaða fyrir fjölmiðla, aðkoma og ýmis þjónusta er í hæsta gæðaflokki. Þó hefur verið ráðist í meiriháttar breytingar á fjórum völlum; í Boston, Mexíkóborg, Toronto og Vancouver og kosta endurbætur valla vegna mótsins í heildina um 187 milljarða króna. Hér sjáum við hlutfall leikvanga þar sem annað hvort var ráðist í meiriháttar framkvæmdir eða vellirnir reistir frá grunni, í samanburði við fyrri mót:


Hlutfall nýrra leikvanga eða verulegra breytinga
Hlutfall nýrra leikvanga eða meiriháttar framkvæmda

Breytingar eru sennilega mestar á BMO vellinum í Toronto. Þar hefur sætum verið fjölgað um tæplega 18.000, en þau verða að líkindum fjarlægð að loknu móti. Skipt verður um gras, varamannaskýli og flóðljós en einnig verða umtalsverðar umbætur gerðar á móttöku gesta og veitingasölu. Kosta breytingarnar ríflega 13 milljarða íslenskra króna.​


Arena das Dunas í Brasilíu

Dýrustu breytingarnar verða þó á AT&T vellinum í Dallas, en áætlað er að heildarkostnaður við þær muni nema tæplega 37 milljörðum króna. Hann er þó einn af dýrustu leikvöngum heims og munu framkvæmdirnar ekki breyta honum nema að litlu leyti.


Kostnaður við endurbætur leikvanga í milljörðum króna
Allir leikvangar HM 2026 og kostnaður við endurbætur þeirra

Af heildarkostnaði þeirra leikvanga sem leikið verður á að þessu sinni er aðeins um tíundi hluti vegna mótsins sjálfs.


Vellirnir


Af leikvöngunum 16 eru 11 í Bandaríkjunum, þrír í Mexíkó og tveir í Kanada. Líttu á upplýsingasíðuna um HM 2026 til að sjá sætafjölda þeirra allra, byggingarár og heildarkostnað.


Sýnishorn af upplýsingasíðu um heimsmeistaramótið

Sorgarsagan frá Brasilíu


Eins og áður segir hafa kröfur FIFA um leikvanga oft reynst gestgjöfum afar erfiðar og jafnvel langvarandi fjárhagsleg byrði. Áhugavert er að líta til Brasilíumanna, í því samhengi. Margir hefðu kannski talið þessa boltaóðu þjóð geta borið nokkra heimsklassa leikvanga til viðbótar, en svo var ekki.

Þeir eyddu þrisvar sinnum meira fé í vellina en til stóð. Ríkisendurskoðun þar í landi gróf upp meiriháttar spillingarmál og á þeim 12 árum sem liðin eru frá mótinu hefur nýting vallanna verið afar misjöfn. Sætum hefur verið stolið, hústökufólk hefur gert sig heimakomið á einhverjum þeirra, rútur verið geymdar inni á vellinum og miðasölutekjur ekki dugað fyrir rafmagnsreikningnum, svo einhver dæmi séu tekin.


Þegar litið er á aðsókn á vellina frá mótinu sést hve óhentugir sumir þeirra voru, en Brasilíumenn eyddu í þá um 1.600 milljörðum íslenskra króna, eða á við fjárlög íslenska ríkisins.


Sætanýting í Brasilíu

Fjólubláu súlurnar sýna meðaltals sætanýtingu árið 2016 og rauðu súlurnar árið 2023.


Sætanýting á leikvöngum HM 2014 í Brasilíu





bottom of page