top of page

8 milljóna króna mark hjá Eyjamanninum?

  • Writer: Björn Berg Gunnarsson
    Björn Berg Gunnarsson
  • 2 days ago
  • 2 min read
Tómas Bent fagnar sigurmarki sínu

Tómas Bent Magnússon skoraði sigurmark Hearts í gærkvöldi. Markið hefði vart getað vegið þyngra. Rétt í lok leiksins, gegn erkifjendunum í Hibs og liðið nú með 6 stiga forskot á toppi deildarinnar þegar 12 umferðir eru eftir. Glasgowliðin Celtic og Rangers eiga reyndar leiki inni til góða, en þetta gæti verið markið sem rætt verður um í lok tímabils.


Þarf aldrei aftur að borga fyrir bjórinn


Í sigurvímu hafa stuðningsmenn Hearts fullyrt að Tómas muni aldrei aftur þurfa að greiða fyrir bjórglas í Gorgie hluta Edinborgar.


Hvorki er gagn af slíkum hugleiðingum né nokkurt vit, en það getur þó verið áhugavert, æfingarinnar vegna, að velta fyrir sér hvað það myndi þýða fyrir Eyjamanninn.


Áætlað er að karlmenn í Edinborg hvolfi í sig að jafnaði mili 7.000 og 9.000 bjórkrúsum um ævina. Í rannsókn á drykkjarvenjum þar í landi kom fram að hvergi væri áfengisdrykkja meiri en einmitt í Edinborg og kostar bjórinn þar um 1.000 kr. á krá.


Gæti þetta því hafa verið 8 milljóna króna mark hjá Tómasi? Að sjálfsögðu ekki, en þetta fær okkur til að halda áfram að grafa og líta á hvað bjórinn kostar þar sem okkar besta fólk spilar. Hvert væri þá ímyndað verðmæti þess að þau skoruðu draumamark að hætti Tómasar og þyrftu aldrei að greiða fyrir bjórinn aftur í viðkomandi borg?


Viktor í dauðafæri?


Það kemur kannski ekki á óvart að áætlaður heildarkostnaður bjórneyslu karlmanns sé hæstur í Kaupmannahöfn, af þeim borgum sem litið var á. Bjórinn er dýr og drykkjan mikil. Ímyndaður sparnaður karlmanns sem aldrei þarf að greiða fyrir bjór þar í land nemur um 15 milljónum króna. Nú reynir því á Viktor Bjarka Daðason, stormsenter.


Næstir á lista yrðu Gylfi Sigurðsson og félagar í Reykjavík, Guðlaugur Victor í Horsens í Danmörku og Ísak Bergmann í Köln.


Kynjamunurinn er mikill. Í Munchen leikur Glódís Perla Viggósdóttir, en ef miðað er við áætlaða bjórdrykkju kvenna í borginni gæti landsliðsfyrirliðinn sparað sér um 4 milljónir króna með svipuðum fríðindum. Gera mætti ráð fyrir álíka fjárhæð í Los Angeles, þar sem Sveindís Jane Jónsdóttir leikur.


Meðal karlanna væri sennilega minnstur fjárhagslegur ávinningur af umræddu marki hjá Sverri Inga Ingasyni í Aþenu, eða innan við 4 milljónir króna.



Tímarnir hafa þó breyst og bjórdrykkja ekki jafn áberandi hluti atvinnumennsku og hún var á sínum tíma. Hvers kyns mark ætli nútímastjarnan þyrfti að skora til að þurfa aldrei að greiða fyrir nikótínpúða og orkudrykk í bænum sínum?

bottom of page