top of page

HM2026 - Langdýrustu miðarnir

  • Writer: Björn Berg Gunnarsson
    Björn Berg Gunnarsson
  • 3 days ago
  • 6 min read
Miðaverð á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu 2026

Mikið hefur verið býsnast, fussað og dæst yfir miðaverðinu á heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. Hafa samtök knattspyrnuunnenda og fjölmiðlar bent á að allt að sjö sinnum dýrara verði fyrir hinn almenna stuðningsmann að fylgja sínu liði en fyrir fjórum árum og þrátt fyrir vilyrði alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA um að ódýrari miðar verði sannarlega í boði, munu fáir geta nálgast það sem sem hingað til hefur verið talin eðlileg verðlagning.


En hversu dýrir eru miðarnir í raun og hvernig lítur samanburðurinn við fyrri mót út?


Hér á síðunni verður í greinum og á sérstakri upplýsingasíðu fjallað ítarlega um ýmislegt sem snýr að fjármálahliðinni og byrjum við á miðaverðinu.



Björn Berg býður upp á upphitun fyrir heimsmeistaramótið í sumar

Bókaðu skemmtilega upphitun fyrir vinnustaðinn eða hópinn þinn


Fyrirlesturinn er tilvalinn fyrir morgun- eða hádegisfundi og getur spannað frá hálftíma að klukkustund.




Dýrustu miðar frá upphafi


Við höfum aldrei séð séð neitt í líkingu við það miðaverð sem stuðningsmönnum þátttökuliðanna og öðrum áhugasömum stendur til boða að þessu sinni. Bloomberg áætlar að tekjur FIFA af sölu miða á mótinu muni nema um 565 milljörðum íslenskra króna, eða hátt í fjórfalt meiri en á HM 2022 í Katar. Er það mögulega huggun gegn þeim harmi að strákunum okkar mistókst að tryggja sér þátttökumiða og við látum því nægja að fylgjast með úr fjarska.


Þess ber þó að geta að leiknir verða 104 leikir í stað 80 á undanförnum mótum og hverjum leik fylgir sannarlega umtalsverður kostnaður. Jafnvel svo mikill að nokkrar deilur hafa staðið um hvort opinberir aðilar eða knattspyrnusambandið leggi meira fram til leiguverðs leikvanga og kostnaðar við framkvæmd hvers leiks.

Áætlaðar miðasölutekjur FIFA á mótinu eru um 565 milljarðar íslenskra króna

En hvað kostar miðinn? Lítum á samanburð við fyrri mót, eins langt og sá samanburður nær og leiðréttum fyrir verðbólgu. Við þurfum þó að setja þann fyrirvara við eftirfarandi tölur að miserfitt hefur verið að grafa þær upp og litið er fram hjá pakkakaupum og þeim fáeinu miðum sem teknir eru frá fyrir heimamenn og fatlaða. Allar tölur hafa verið staðfestar með hið minnsta tveimur heimildum og ættu að gefa til kynna hve dýrt hefur verið fyrir stuðningsmenn að fylgjast með sínu liði.


Umræður um fjármál Heimsmeistaramótsins 2026 í hlaðvarpi Dr. Football

Þá er hér litið á verð þeirra miða sem keyptir eru beint af alþjóða knattspyrnusambandinu FIFA. Nú verður sú breyting gerð á fyrirkomulagi endursölu miða að slíkt fer í gegnum miðasölukerfi FIFA sem tekur væna sneið við hverja sölu og mun því að meðaltali þéna meira fyrir hvern miða en hér kemur fram. FIFA fær í sinn hlut 100% miðasölutekna og deilir þeim ekki með gestgjöfum mótsins.


Um miðaverðið

Svæðaskipting á SoFi vellinum í Los Angeles. Þar sést að um helmingur miða er í 1. verðflokki.

Hér verður litið á verð (eða meðaltalsverð) á miða í 1. verðflokki og 3. verðflokki. Ef slíku var ekki að skipta er miðað við ódýrasta og dýrasta miða. Athygli vekur að stærra hlutfall miða en oft áður verður í 1. verðflokki, þ.e. þeim dýrasta, eða um helmingur allra seldra miða.


Á meðfylgjandi mynd má sjá svæðaskiptingu á SoFi vellinum í Los Angeles. Gulu svæðin eru í verðflokki 1 en þau bláu þeim þriðja. Ens og sjá má eru þar fáir miðar í boði, uppi í rjáfrum.


Fyrir áhugasama er því raunhæfara að líta á dýrustu almennu miðana, í verðflokki 1. Enn dýrari miðar verða þó í boði í svítum og betri sætum vallarins, en þeir eru seldir með aðskildum hætti og ekki inni í þessari samantekt.


Opnunarleikur HM


Að þessu sinni verða opnunarleikirnir í fyrsta skipti þrír; hjá Bandaríkjamönnum, Kanadamönnum og Mexíkönum. Ódýrasti miði kostar þar á við þann sem í fyrri mótum var dýrastur. Fyrir miða í síðri sætunum þarf að hósta upp litlum 120 þúsund krónum en fyrir venjulegt sæti á betri stað í stúkunni (3. verðflokki) kostar miðinn um 285 þúsund krónur. Mótið hefst því á fljúgandi siglingu, fjármálalega séð, enda miðarnir margfalt dýrari en áður, eins og sést á samanburðinum við fyrri mót.


  • Miði á opnunarleik í 1. verðflokki kostar nú ríflega þrisvar sinnum meira en í Katar árið 2022.


Riðlakeppnin


Í riðlakeppninni verða leiknir 72 leikir í stað 48 í Katar árið 2022. Eins og sést verður miðinn dýr fyrir þá sem þó ná að tryggja sér sæti. Um 500 milljónir beiðna bárust í fyrstu umferð miðasölu, þar sem FIFA bauð áhugasömum að taka þátt í miðahappdrætti. Vinningslíkurnar, ef við teygjum okkiur svo langt að kalla heimildina til að greiða svo hátt verð fyrir miða vinning, voru því afar litlar. Með vorinu verður opnað fyrir aðra umferð, en þá verða afgangsmiðar seldir þeim sem nógu fljótir eru að óska eftir þeim.


Ódýrasta sæti á leik í riðlakeppni kostar að jafnaði um 25.000 kr. að þessu sinni, sem er um 160% verðhækkjun frá síðasta móti. Þó skal taka fram að í Katar voru nokkrar áhyggjur af sölu miða í riðlakeppni vegna lítils heimamarkaðar og því voru ódýrustu miðar ódýrari en mótin þrjú á undan.


  • Miði á leik í riðlakeppni, í 1. verðflokki, kostar nú um 120% meira en í Katar árið 2022.

32 liða úrslit


Vegna fjölgunar þátttökuþjóða fara lið nú í fyrsta sinn beint úr riðlakeppni í 32 liða úrslit í stað 16 liða úrslita áður. Munu miðar á þá leiki kosta frá 26.000 kr. í 3. verðflokki til 67.000 kr. í 1. verðflokki.


Stuðningsmenn Brasilíu fylgjast með leik á HM

16 liða úrslit


Það kostar að jafnaði um 90.000 kr. að sækja leik í 16 liða úrslitum að þessu sinni, en verðið hafði verið nokkuð stöðugt í tæpum 40.000 kr. að núvirði frá árinu 2010 þegar leikið var í Suður-Afríku. Þá eru ódýrustu miðarnir einnig mun dýrari en áður og kosta um 34.500 kr. í stað tæpra 20.000 kr. áður.


Ódýrastur var miði á 16 liða úrslit í Frakklandi 1998. Þar kostaði aðeins 8.500 kr. á verðlagi dagsins í dag að sjá Argentínumenn slá Englendinga út eftir fræga brottvísun David Beckham og draumamark Michael Owen. Þar fengu áhorfendur heldur betur mikið fyrir peninginn.


  • Miði á leik í 16 liða úrslitum í 1. verðflokki kostar nú um 140% meira en í Katar árið 2022.

8 liða úrslit


Áttu 180.000 kr. á lausu? Þá getur þú kannski reynt að festa þér miða á 8. liða úrslitin. Allir leikirnir fara fram í Bandaríkjunum; í Massachusetts, Los Angeles, Miami og Kansas City.


  • Miði á leik í 8 liða úrslitum, í 1. verðflokki, kostar nú þrisvar sinnum meira en í Katar árið 2022.


Undanúrslit


Undanúrslitin verða dýr. Fyrir tæpar 400.000 kr. auk gistingar og flugs til Atlanta eða Dallas fæst miði á herlegheitin. Er það, sem fyrr í þessari upptalningu, langdýrasta miðaverð á undanúrslitaleik hingað til og raunar tvöfalt hærra verð en á úrslitaleikinn sjálfan í Katar 2022, sem þó var sá dýrasti sem fram til þess hafði farið fram.


  • Miði á undanúrslit í 1. verðflokki kostar nú þrisvar sinnum meira en í Katar árið 2022.

Úrslitaleikur


Úrslitaleikirnir eru merkilegir fyrir margra hluta sakir. Um 87.000 manns munu fylgjast með úr sætum hins stórlæsilega MetLife leikvangs í New Jersey, en á annan milljarð þurfa að láta sér sjónvarpið nægja. Áhorf á úrslitaleikinn hefur aukist stöðugt að undanförnu. Áætlað er að hátt einn og hálfur milljarður hafi fylgst með leik Argentínu og Frakklands fyrir fjórum árum sem voru um 400 milljónum fleiri en sáu Frakka leggja Króata árið 2018. Um milljarður sá Þjóðverja sigra Argentínu 2014 og 900 milljónir fylgdust með leik Spánar og Hollands í Suður-Afríku 2010.


Aukinn áhugi skýrir þó ekki hið mikla stökk í miðaverði sem nú sést milli móta heldur ræðst það af ætluðum áhuga og því sem áhorfendur í Bandaríkjunum hafa vanist.


Merkilegt nokk virðist miðinn ætla að verða nokkuð ódýrari en á Super Bowl, þegar miði í svæði 1 kostaði að jafnaði um 1,4 milljónir króna og sá ódýrasti um hálfa milljón.


Í samanburði við fyrri heimsmeistaramót í fótbolta er munurinn þó hreint makalaus. Fínu sætin hafa hingað til kostað á bilinu 130 og 180 þúsund krónur, en um milljón krónur í sumar. Þá má minna á að fleiri sæti en áður eru skilgreind í 1. verðflokki og reikna má með að stór hluti miða verði seldur á eftirmarkaði, á mun hærra verði.


  • Miði á opnunarleik í 1. verðflokki kostar nú ríflega fjórum sinnum meira en í Katar árið 2022.

Á að skella sér?


Milljón krónur fyrir miða á úrslitaleikinn? Þá á eftir að bóka flugmiða og gistingu og ef það gengur upp er alls óvíst að miði fáist, hvað þá á auglýstu verði.

Nei, líkt og áður segir höfum við aldrei séð neitt í líkingu við þá verðlagningu sem bíður áhorfenda á HM 2026. Því horfum við heima í stofu, með vinum og kunningjum og spörum okkur aurinn. En fyrir þá fáu sem ætla að bregða sér út er vonandi að leikirnir verði skemmtilegir, nóg kostar á þá!


Greint verður frá fleiri áhugaverðum staðreyndum um heimsmeistaramótið þegar nær dregur.



bottom of page