top of page

Eru greiðsludreifingar virki­lega jafn hentugar og allir segja?

Writer: Björn Berg Gunnarsson
Björn Berg Gunnarsson
11 minutes ago
4 min read
Verslanir í miðborg Reykjavíkur

Björn Berg svarar spurningum lesenda Vísis


27 ára kona spyr:

Mér finnst eins og allir í kringum mig séu að skipta greiðslum fyrir alls konar kaup (t.d. síma, tölvur og heimilistæki). Alltaf verið að tala um hversu hentugt þetta er og ódýrt. „Miklu betra að borga einhverja þúsundkalla á mánuði heldur en 200K núna“ sagði einn við mig. En er þetta ekki bara lán? Þessi sami einstaklingur er í raun að borga hátt í 70K samtals á mánuði fyrir allar þessar greiðslur. Er þetta virkilega jafn hentugt og lítið mál eins og margir virðast halda?“

Björn Berg svarar lesendum Vísis

Yfirleitt þarf ég að ræskja mig duglega með fyrirvörum á þessum vettvangi. Fjármál eru í eðli sínu persónuleg og fer svarið því oft eftir aðstæðum og smekk hvers og eins. Það er því ánægjuleg tilbreyting þegar hægt er að svara afdráttarlaust.


Það er hollt að efast


Af orðalagi spurningar þinnar má merkja heilbrigðar efasemdir um greiðsludreifingar. Þegar allir í kringum þig tala um að dreifa greiðslum hvíslar lítill fjármálalæsisálfur að þér „getur það í alvöru verið?“. Það eru góðar fréttir, því það getur verið erfitt að standast hópþrýsting.


Rándýr lán


Þú spyrð hvort þetta séu „ekki bara lán“ og það er hárrétt hjá þér. Með greiðsludreifingu kýst þú að kaupa eitthvað núna og greiða fyrir það síðar. Misjafnt er hve áberandi kostnaðurinn er þegar lánin eru tekin, en þú átt alltaf að geta nálgast tölu sem kallast árleg hlutfallstala kostnaðar, eða ÁHK. Hún endurspeglar heildarkostnað lántökunnar (í þessu tilviki dreifingarinnar) á ársgrundvelli.


Hafnarhvoll, Tryggvagötu 11 í Reykjavík

Ertu að leita að persónulegri ráðgjöf?


Bókaðu tíma á skrifstofu Björns í Hafnarhvoli, eða á fjarfundi.



Dæmi

Tökum dæmi um kaup á iPhone 17 pro síma í einni íslenskri vefverslun. Ef greitt er fyrir hann strax kostar hann 210 þúsund krónur. Ef vinir þínir dreifa hins vegar kaupunum bætist við alls kyns kostnaður. Þeir geta til dæmis dreift greiðslum á 18 mánuði og þá þurfa þeir aðeins að greiða 14.776 kr. á mánuði. Þetta kalla vinir þínir hentugt og ódýrt. En þú veist að þetta er hræðileg hugmynd.


Í þessu dæmi eru greiddir 16,5% vextir, 11.549 kr. lántökugjald og 789 kr. á mánuði fyrir að fá að greiða af láninu (greiðslugjald). ÁHK lánsins nemur þarna 38,33% og er langt í frá hæsti kostnaðurinn sem slíkar greiðsludreifingar geta borið (þær geta þó líka verið ódýrari). Í stað þess að síminn kosti vini þína 210 þúsund krónur finnst þeim þægilegra og ódýrara að greiða fyrir hann 254 þúsund krónur. Þú veist jafn vel og ég hvernig þetta endar. Þarna er verið að leyfa sér eitthvað sem ekki er svigrúm fyrir í heimilisfjármálunum og þá er gripið til þess ráðs að steypa sér í skuldir í stað þess að segja bara nei. Þessi hegðun verður sífellt meiri byrði á fjárhag fólks og dregur bæði úr öryggi og getu til að byggja eitthvað upp, greiða niður aðrar skuldir (sjá reiknivél) og hafa það betra fjárhagslega til lengri tíma litið. Þetta er grundvallaratriði að vita, ef við ætlum að vera þokkalega læs á fjármál.


Fjármálalæsi 101


Ef bók um fjármálalæsi væri aðeins kápa og örfá orð gæti efni hennar verið á þessa leið: Kafli 1 – Svona eykur þú stórlega líkur á bjartri fjárhagslegri framtíð


Ekki taka neyslulán. Eðlilega þarftu aðstoð við að kaupa þér íbúð en annars skaltu ekki kaupa neitt sem þú hefur ekki efni á.


Farið yfir fjármálin

Námskeið fyrir hópa - Leiðin að skuldleysi


Bókaðu námskeið fyrir fyrirlestur fyrir þinn hóp.




Hvað ef neyslulán eru nauðsynleg?


Í neyðartilfellum geta greiðsludreifingar vegna neyslu þó verið nauðsynlegar. Dæmi um það er ef ekki er hægt að kaupa nauðsynleg lyf eða mat. Ef enginn neyðarsjóður er til staðar gætum við þurft að bjarga okkur með lántöku, en þá borgar sig að nýta hagstæðustu mögulegu leiðir. Sömuleiðis þarftu að skipuleggja hvernig greiða á lánið fljótt og örugglega niður. Öll neyslulán eru dýr en til mjög skamms tíma geta greiðslukorta- og yfirdráttarlán verið skárri en lán sem fela í sér annan kostnað en aðeins vexti. Ræddu við bankann og kynntu þér aðrar lausnir áður en þú tekur því sem otað er að þér við kaupin.


Hvernig gerum við betur?


Ekki herma eftir vinum þínum. Þeir eru ekki vitlausir, þeir misskildu bara grundvallaratriði í fjármálum og sá misskilningur er mjög algengur. Hvettu þá til þess að byrja að greiða neyslulánin niður með skipulögðum hætti og skipuleggja sín fjármál þannig að aldrei þurfi að grípa í greiðsludreifingar framar. Til þess þarf þó fjárhagslegt svigrúm og þá gæti þurft að taka til í heimilisbókhaldinu. Ég útbjó nýlega reiknivél sem sýnir notandanum áhrif þess að sleppa eða skipta út ákveðnum útgjöldum og leggja fyrir sparnaðinn. Vonandi hjálpar hún þeim við að þoka fjármálunum í rétta átt.


Það þarf að breyta stemningunni í þessum vinahópi og kannski getur þú velt þeim breytingum af stað. Eins og ég nefndi í upphafi er jákvætt að þú skulir bera þessa spurningu upp og efast um afleit viðhorf vina þinna. Það þýðir að þú ert nú þegar með þau heilbrigðu grunnviðhorf sem þarf til að byggja upp og viðhalda heilbrigðum fjárhag til framtíðar.


Betri yfirsýn yfir fjármálin

Skráðu þig á póstlista og fáðu send ókeypis fréttabréf um persónuleg fjármál og lífeyrismál. Fáðu sendan gagnlegan fróðleik sem hjálpar þér að taka betri fjárhagslegar ákvarðanir.

Persónuleg fjármál

Takk fyrir að skrá þig

Lífeyrismál

Takk fyrir að skrá þig

Um Björn Berg

Björn Berg Gunnarsson er sjálfstæður fjármálaráðgjafi og fyrirlesari í Reykjavík.

Hann hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 2007, þar af sem fræðslustjóri og deildarstjóri greiningardeildar Íslandsbanka. Björn rekur ráðgjafarþjónustuna BB rágjöf, býður upp á námskeið og fyrirlestra fyrir vinnustaði og einstaklinga og er reglulegur álitsgjafi um fjármál í íslenskum fjölmiðlum. Hann er höfundur bókarinnar Peningar (2021).

bottom of page