top of page

Hvað spara börnin mín á því að sleppa bíla­kaupum?

  • Writer: Björn Berg Gunnarsson
    Björn Berg Gunnarsson
  • 1 day ago
  • 3 min read
Bíll í Reykjavík

Björn Berg svarar spurningum lesenda Vísis


44 ára kona spyr:

Sæll Björn. Ég er móðir ungra háskólanema. Getur þú reiknað fyrir þau hvað þau myndu spara á ári við það að kaupa ekki og reka ekki bíl? Jafnvel tekið dæmi um hve mörgum árum það gæti seinkað því að þau ættu fyrir útborgun í íbúð?

Björn Berg svarar lesendum Vísis

Það getur verið þægilegt að leita í smiðju Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB). Þar má nálgast áætlanir um rekstrarkostnað bifreiða og er sú nýjasta frá liðnu ári. Þar er hvorki gert ráð fyrir kílómetragjaldi, breyttu eldsneytisverði eða tímabundinni lækkun virðisaukaskatts, en ég tel samantekt þeirra þó gefa okkur nokkuð góða mynd af heildarkostnaði.


Bílar eru dýrir


Sambandið leggur fram sex ólík dæmi. Við skulum hér miða við það ódýrasta, en þar er litið á 3,9 milljóna króna bensínbíl, sem ekinn er 15.000 km. á ári. Heildarkostnaður er þá áætlaður um 1,6 milljónir króna ár hvert og það heggur að sjálfsögðu í möguleika þeirra á að safna sér fyrir íbúð, enda falla peningar almennt ekki af trjánum þegar við stundum háskólanám.


Fréttabréf á bjornberg.is

Foreldranámskeið um fjármál barna og unglinga


Gagnlegt námskeið fyrir hópa og vinnustaði



Sparnaðurinn er mikill


Í stað bíls gætu þau nýtt aðra fararmáta. Þar sem ég hef ekki upplýsingar um hve langt er fyrir þau í skóla og tómstundir þarf ég að geta í eyðurnar og við skulum reikna með að þau geti tekið strætó, en nýti sömuleiðis Hopp-hjól og einstaka leigubíl ef þörf er á.


  • Árskort í Strætó kostar nemendur 58.000 kr.

  • Hopp-hjól í 10 mínútur, tvisvar í viku, kostar sömuleiðis um 58.000 kr. á ári

  • Leigubílaferð einu sinni í mánuði gæti kostað um 84.000 kr. á ári


Saman gerir þetta 200.000 kr. Það væri því átta sinnum dýrara að eiga bíl en með þessu væru þau að spara um 1,4 milljónir króna á ári!


Hverju myndi þetta muna?


Gerum nú ráð fyrir að sparnaðurinn sé lagður fyrir í mánuði hverjum og beri 6% ávöxtun. Þú getur líka stillt upp þínu dæmi með því að nota þessa reiknivél.


Ár

Sparnaður

1

1,4 mkr.

2

3,0 mkr.

3

4,6 mkr.

4

6,4 mkr.

5

8,1 mkr.

6

10,0 mkr.

Eins og sjá má er um verulegar fjárhæðir að ræða og draumurinn um að eiga fyrir útborgun í íbúð sannarlega innan seilingar. Til viðbótar við þessar fjárhæðir mætti bæta uppsöfnuðum og skattfrjálsum viðbótarlífeyrissparnaði og því sem lagt hefði verið fyrir ef ákveðið væri að festa kaup á bíl.


Ef markmiðið er að safna fyrir 15% útborgun í 65 milljóna króna íbúð ætti samgöngusparnaðurinn í okkar dæmi að duga, einn og sér, til þess að festa megi kaup á íbúðinni á innan við 6 árum. Þetta tæki innan við 4 ár ef spara á fyrir 10% útborgun í 60 milljóna króna íbúð.


Fréttabréf á bjornberg.is

Hvað tekur langan tíma að safna fyrir útborgun?


Notaðu reiknivélina til að sjá útkomuna og áhrif hækkunar íbúðaverðs á sparnaðartímanum.



Þar sem ég veit ekki hvert fjárhagslegt svigrúm þeirra er get ég ekki boðið þessar tvær sviðsmyndir saman og hversu mikið íbúðakaupin frestast vegna bílakaupa, en þarna munar væntanlega fjölmörgum árum.


Bílar geta að sjálfsögðu verið þægilegt og jafnvel nauðsynlegt tól til að koma okkur á milli staða. En þeir eru almennt afleit fjárfesting og rándýrir í rekstri. Enn verri eru þeir ef tekið er lán fyrir kaupunum og því skaltu reyna hvað þú getur að passa upp á að engin bílalán séu tekin, kjósi þau að kaupa sér bíl.



Fréttabréf á bjornberg.is

Fáðu fróðleik sendan í fréttabréfum

Það kostar ekkert að skrá sig á póstlista og fá send fréttabréf um persónuleg fjármál og lífeyrismál.



Um Björn Berg

Björn Berg Gunnarsson er sjálfstæður fjármálaráðgjafi og fyrirlesari í Reykjavík.

Hann hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 2007, þar af sem fræðslustjóri og deildarstjóri greiningardeildar Íslandsbanka. Björn rekur ráðgjafarþjónustuna BB rágjöf, býður upp á námskeið og fyrirlestra fyrir vinnustaði og einstaklinga og er reglulegur álitsgjafi um fjármál í íslenskum fjölmiðlum. Hann er höfundur bókarinnar Peningar (2021).

bottom of page