top of page

Hvað kostar ferðin í raun? Reiknum dæmið

  • Writer: Björn Berg Gunnarsson
    Björn Berg Gunnarsson
  • 1 day ago
  • 2 min read
Við Nýhöfn í Kaupmannahöfn

Það er ekki nóg að eiga fyrir flugmiðanum, við þurfum að ráða við ferðalagið í heild sinni. Eðlilega hugsum við fyrst og fremst út í þetta helsta, flugið, gistingu, bílaleigu og þess háttar, en aðrir kostnaðarliðir geta verið fljótir að telja.


Þess vegna skipuleggjum við okkur og pössum upp á að allt dæmið gangi upp áður en lagt er í hann.


Það er neyðarráðstöfun að eyða peningum sem ekki eru til. Því ætti ekki, undir nokkrum kringumstæðum, að taka lán fyrir ferðalögum og fríum.


Hvað kostar ferðin í raun


Við gætum þurft að gera ráð fyrir fjöldanum öllum af kostnaðarliðum þegar haldið er í frí:


  • Hvað kostar að koma sér til og frá flugvöllum hér heima og erlendis? Á kannski að leggja bílnum í Keflavík með tilheyrandi kostnaði?

  • Er búið að ganga frá flugi og gistingu?

  • Hvað fer mikið í mat og drykk?

  • Hvað með afþreyingu af ýmsu tagi?

  • Hvernig á að koma sér á milli staða þegar út er komið?

  • Á að leyfa sér eitthvað? Versla? Koma við í tollinum?

  • Hvað með undirbúning fyrir ferðina? Á að láta spreyja á sig forskoti á sólina? Kaupa sundföt eða gönguskó?



Reiknum þetta út


Ég hef útbúið reiknivél sem hjálpar þér við að stilla dæminu upp.


Þú byrjar á því að velja hvenær ferðin verður farin, hve margir ferðalangarnir eru og fjölda nátta. Í kjölfarið fyllir þú út, eða áætlar, hvern kostnaðarlið fyrir sig.


Reiknivélin leggur þetta allt saman og sýnir áætlaðan heildarkostnað. Hún sýnir einnig kostnað á mann og á dag, ásamt því hvernig útgjöldin skiptast milli kostnaðarliða.


Fréttabréf á bjornberg.is

Fleiri reiknivélar

Hér á vefnum má nálgast fjölda ókeypis reiknivéla um sparnað, niðurgreiðslu skulda, breytta neysluhegðun og fleira sem bætir fjárhaginn.



Það getur komið á óvart hvert peningurinn fer. Kannski er það ekki gistingin sem mestu munar um. Mögulega eru það veitingastaðirnir, bílaleigubíllinn eða öll litlu útgjöldin. Því er ágætt að gera ráð fyrir vissu svigrúmi. Ferðin gæti orðið dýrari en okkur tekst að gera ráð fyrir.


Ef þú hefur dágóðan fyrirvara á ferðalaginu sérðu neðst í reiknivélinni hve mikið þú þarft að leggja fyrir í mánuði hverjum til að geta staðgreitt áætlaðan heildarkostnað.


Vonandi nýtist reiknivélin vel! Mundu að skynsamleg og ábyrg fjármál gera lífið ekki leiðinlegt, heldur þvert á móti. Með fyrirhyggju og skipulagi má leyfa sér meira. Þá nýturðu frísins líka betur, vitandi að þín bíður ekki himinhár reikningur við heimkomuna.


Fréttabréf á bjornberg.is

Fáðu fróðleik sendan í fréttabréfum

Það kostar ekkert að skrá sig á póstlista og fá send fréttabréf um persónuleg fjármál og lífeyrismál.



bottom of page