Góð ráð á ferðalögum
- Björn Berg Gunnarsson
- 2 days ago
- 2 min read

Ekki koma heim í mínus. Hér eru nokkur einföld ráð sem hjálpa þér við að passa upp á budduna á ferðlögum.
Greiðslur
Í posa skaltu velja að greiða í gjaldmiðli þess lands sem þú ert í. Þá færðu líklega betra gengi
Forðastu aðra hraðbanka en þá sem eru staðsettir utan á eða inni í útibúi stórs banka. Það munar um að spara kostnaðinn sem fylgir slíku
Hugaðu að gengi og kostnaði sem fylgir notkun greiðslukorta á ferðalögum. Ertu með heppilegasta kortið?
Láttu frysta kortið þitt um leið og eitthvað virðist bogið. Þú getur gert það í appinu þínu
Greiðslur með síma og korti geta verið öruggari en kortagreiðslur
Öryggi á ferðalögum
Kynntu þér vel og vandlega svik og glæpi sem algengir eru á áfangastaðnum
Fáðu alltaf að vita verð á þjónustu fyrirfram, til dæmis í leigubílum og þegar keypt er þjónusta
Kynntu þér hvort og hve mikið þjórfé tíðkast að greiða
Ekki tengjast fríu þráðlausu neti á ferðamannastöðum
Passaðu upp á að tveggja þátta auðkenning sé virk á viðkvæmustu stöðum
Kynntu þér þær ferðatryggingar sem fylgja greiðslukortinu þínu
Neysla
Safnaðu fyrir fríinu, alls ekki greiða fyrir það með greiðsludreifingu þegar heim er komið
Skipulegðu þig vel og vandlega með löngum fyrirvara. Leitaðu tilboða á flugi, gistingu, skemmtun og samgöngum
Skammtaðu þér neyslufé fyrir hvern dag. Hve miklu má verja í mat, skemmtanir og fleira?
Nýttu reiðufé til daglegra útgjalda. Þá tekst þér betur að halda þig innan fjárhagsáætlunar
Oft er mun ódýrara að snæða á veitingarstöðum í hádegi en á kvöldin. Kynntu þér slíkt, afslætti, happy hour verðlagningu og fleira sem tengist mat og drykk
Gerðu sem mest úr hverri krónu
Vandaðu þig sérstaklega vel við undirbúning ferðalagsins, svo þú fáir sem mest fyrir peningana, getir notið frísins áhyggjulaus og meira svigrúm verði fyrir fleiri ferðalög í framtíðinni.
Það skal ítrekað að við eigum ekki að líta á það sem valkost að dreifa kortagreiðslum þegar heim er komið. Við eigum að hafa það sem ófrávíkjanlega reglu að ekki sé farið í ferðalög sem við getum ekki staðgreitt. Ef þú getur það ekki skaltu sleppa ferðalaginu og fara síðar. Kostnaður við dreifingar er gríðarlegar hár, langan tíma getur tekið að greiða af slíkum lánum og ef við venjumst slíkri lántöku getum við dregið verulega úr lífsgæðum okkar til framtíðar.
Þegar ferðast er með börn og unglinga er mikilvægt að sýna gott fordæmi. Höfum í huga að ef börnin sjá foreldra sína meðhöndla peninga með óábyrgum og virðingarlausum hætti telja þau slíkt eðlilegt og verða líklegri til að gera sömu mistök sjálf.
Ef þú ert á leið úr landi eru engar afsakanir. Slepptu þessum leiðinlega Netflix þætti í kvöld og byrjaðu að skipuleggja þig. Það er algjört aukaatriði hvort þér leiðist það, þú getur skemmt þér í fríinu. Nú skulum við temja okkur vandaða og góða hagi í tengslum við ferðalög. Lágmörkum líkurnar á óhöppum og svikum, óhóflegri neyslu og svívirðilegum gjöldum, óvæntum viðbótarkostnaði og óhagstæðu gengi. Hugsaðu þér hvað við getum fengið margt skemmtilegt í staðinn.
Góða ferð!