top of page

Dýrustu páskaeggin

  • Writer: Björn Berg Gunnarsson
    Björn Berg Gunnarsson
  • 3 hours ago
  • 2 min read
Undur drengur hámar í sig páskaegg

Vissulega þarf að bretta upp ermar, en það ætti að vera hægt að torga því. Páskaegg nr. 7 frá Nóa-Síríus vegur um 740 grömm og tæpar 4.000 kaloríur. Sú orka dugar til að knýja 9W LED ljósaperu í heila viku.


Páskaegg nr. 7 frá Nóa-Síríus

Rollsinn á íslenska páskaeggjamarkaðinum kostar 5.397 í Krónunni og er dýrasta eggið sem þar er til sölu. En hvert eiga þeir sem vilja verja hærri fjárhæðum í páskana að leita? Við skulum líta á nokkur dæmi þar sem gengið hefur verið ansi langt í páskaspreðinu.


Dýrasta súkkulaðiegg sögunnar


Um páskana 2012 freistuðu íbúar London þess að setja heimsmet þegar blásið var til stærstu páskaeggjaleitar sem haldin hafði verið fram að því. Og heimsmetið féll því 12.773 manns létu sjá sig og grömsuðu froðufellandi eftir 200 stærðarinnar eggjum sem falin höfðu verið víðsvegar um borgina. Fjöldi hönnuða gaf sérhönnuð egg, en eitt þeirra stóð upp úr.


Dýrasta súkkulaðiegg sögunnar

50 kílógramma páskaegg súkkulaðimeistarans William Curley var boðið upp svo safna mætti fyrir góðu málefni. Eggið var mjög veglegt, enginn málsháttur að vísu en fínasta konfekt, gull og dýrasta fáanlega hráefni. Eggið keypti indverski milljarðamæringurinn Cyrus Vandrevala á um 1,7 milljónir króna og hlaut eggið viðurkenningu heimsmetabókar írska bjórframleiðandans Guinness sem dýrasta páskaegg án gimsteina, sem selt hefur verið á uppboði.


Dýrasta skreytta eggið


Kona virðir fyrir sér egg La Maison du Chocolat

Franska súkkulaðigerðin La Maison du Chocolat gekk skrefinu lengra og útbjó enn glæsilegra egg fyrir tveimur áratugum.


Eggið var skreytt 100 hálfs karats demöntum og var áætlað verðmæti þess um 14,5 milljónir króna.


Dýrustu páskaeggin


Fjöldinn allur af dýrum eggjum hefur verið útbúinn í tilefni hátíðarinnar í gegnum tíðina. Gullegg Peter Nebengaus kosta um 2,5 milljónir króna stykkið og 1.000 demanta Mirage egg Manfred Wild yfir 300 milljónir króna.


En ekkert toppar Fabergé eggin. Rússnesku keisararnir Alexander þriðji og Nikolaj annar létu skartgripagerð Rússans Peter Carl Fabergé útbúa 50 gullfalleg egg sem páskagjafir. Ef þau á annað borð eru boðin til sölu, hleypur kaupverðið á milljörðum. Í desember síðastliðnum seldist „Vetrareggið“ svokallaða hjá uppboðshúsi Christie's í London á rúma 4 milljarða króna.



Dýrasta páskakanínan

Dýrasta páskakanínan

Fyrir um áratug seldi lúxusvöruvefsíðan VeryFirstTo páskakanínu úr súkkulaði, gulli og demöntum, sem sögð var dýrust allra. Hún var nokkurn veginn í fullri stærð (um 38 cm), fimm kílógramma þung og útbúin af fínustu súkkulaðigerðarmönnum. Merkilegust þóttu augu kanínunnar, hvort um sig úr 1,7 karata demöntum.


Stykkið kostaði 8,7 milljónir króna á verðlagi dagsins í dag.


Þá held ég að ég kjósi bara íslenskt páskaegg.






bottom of page