top of page

Verðbólgan í innkaupakerrunni - Er eitthvað ódýrara?

  • Writer: Björn Berg Gunnarsson
    Björn Berg Gunnarsson
  • 3 days ago
  • 2 min read

Updated: 1 day ago

Mæðgur hjálpast að í eldhúsinu

Það er ekki ódýrt að fara út í búð. Allt virðist hafa hækkað í verði og það svíður á fara á kassann.


Þetta er ekki ímyndun. Matur og óáfengir drykkir eru sannarlega talsvert dýrari í dag en fyrir 5 árum síðan og það hefur að sjálfsögðu áþreifanleg áhrif á heimilisreksturinn okkar.


Hvernig drögum við úr áhrifum verðhækkana?


Það er auðvelt að segja „hættu að borða svona mikið!“, en það hljóta að vera til praktískar leiðir svo draga megi úr verðbólgunni í okkar innkaupakerru.


Eitt af því sem við getum gert er, eins leiðinlega og það hljómar, er að fylgjast með undirliðum vísitölu neysluverðs (sem reiknar verðbólguna). Þar má sjá þróun helstu útgjalda, bæði í yfirflokkunum sem sjá má á ritinu að neðan og í undirliðum hvers og eins flokks.


Þar sem matur og óáfengir drykkir fylla ríflega 15% af innkaupakerru okkar Íslendinga getur munað miklu um þann sparnað sem þar er að finna.

Undirflokkar vísitölu neysluverðs
Vægi einstakra liða í vísitölu neysluverðs

Vissulega getur mikil og góð aðstoð einnig falist í verðlagseftirliti og skynsamlegum innkaupum á afsláttarverði. En þegar allt virðist hækka í verði getur verið erfitt að átta sig á hvað hefur hækkað meira en annað.


Hvaða kjöttegund hefur hækkað mest undanfarin 5 ár?


Við skulum líta á verðhækkanir undanfarinna 5 ára og byrjum á helstu kjöttegundum. Sá fyrirvari skal settur við eftirfarandi tölur að um fleiri undirliði er að ræða í vísitölunum og til einföldunar eru nokkrir þeirra dregnir fram. Innan hvers flokks getur verðþróun loks verið nokkuð breytileg, t.d. við ólíka skurði af dýrakjöti.


Verðþróun á kjöti
Verðhækkun undanfarin 5 ár

Eins og sést hefur verð á lamba- og nautakjöti hækkað hvað mest og langt umfram svínakjöt, alifuglakjöt (m.a. kjúkling) og fisk. Þar sem verðbólga hefur verið tæp 37% á tímabiliinu hafa allar þessar kjöttegundir því hækkað umfram verðlag undanfarin fimm ár.


Hvað með aðrar matvörur?


Það getur auðvitað ýmislegt annað ratað á diskinn en kjöt og áhugavert er sjá hve lítið verð hrísgrjóna og pastavara hefur hækkað á tímabilinu. Að raunvirði hefur verðið lækkað nokkuð og því er hægt, að einhverju leyti, að búa í nokkuð lægri verðbólgu en rætt er um í fréttunum.


Verðhækkun ýmissa matvara undanfarin 5 ár

Við kassann í matvörubúðinni hefur reikningurinn kannski hækkað um 37% undanfarin 5 ár, en það þarf ekki að vera 37% dýrara fyrir okkur að kaupa í matinn. Virkir og sniðugir neytendur geta ef til vill dregið úr þeirri verðbólgu á sínu heimili ef valið er og raðað með öðrum hætti í körfuna.


Viltu draga enn frekar úr kostnaði? Nýttu gervigreindina. Taktu mynd af því sem til er í ísskápnum, frystinum, búrinu, skápunum og kryddskúffunni og óskaðu eftir hollum og góðum uppskriftum. Þannig nýtist hráefni jafnvel enn betur og minni matvara (og þar með peningar) fer til spillis.

bottom of page