Þú þarft að hefja jólaundirbúninginn strax


Ja hérna. Það er ennþá september. Við erum rétt að kveðja sumarið þegar Bónus dröslar fram piparkökunum og Byko ýtir grillunum til hliðar svo rýma megi til fyrir jólaskrautinu.
Auðvitað er þetta allt of snemmt. Ég vil ekki heyra eitt einasta jólalag, en við ættum samt að átta okkur á því að í samhengi fjármálanna eru jólin rétt handan við hornið.
Ef þú lest þessa grein í september eru aðeins þrír útborgunardagar til jóla. Við höfum því enn tíma til undirbúnings svo þessi árlegi viðburður komi okkur enn einu sinni ekki í opna skjöldu.
Jólin bætast ofan á allt hitt
Vandinn við jólaútgjöldin er að annar rekstrarkostnaður heimilisins fer ekki í frí á meðan. Þegar kveikt er á jólaseríunni slokknar ekki á greiðslubyrði lána, tryggingum, símareikningnum og öðrum hversdagslegum útgjöldum. Við verðum því að eiga nóg í buddunni fyrir þeim, sem og gjöfum, bakstri, tónleikum, jólaskóm, malti og appelsíni.
Vissulega getur desemberuppbót hjálpað þeim sem hana fá, en þrátt fyrir slíka aðstoð virðist merkilega mikið um að jólin séu tekin að láni, eða hluti þeirra. Það þýðir að ekki er gert ráð fyrir jólum í heimilisbókhaldinu og afleiðingarnar eru bæði rándýrar og óþægilegar auk þess sem þær draga úr fjárhagslegu öryggi.
Ekki taka lán fyrir jólunum - Viðtal í Reykjavík síðdegis
Rætt var um jólasparnað í Reykjavík síðdegis í sumar.
Þessi jól verða dýrari
Verðlag á Íslandi hækkaði um 4,3% frá desember 2025 til ágúst 2026. Sú hækkun er því þegar komin fram og það væri óvarlegt að áætla að engin verðbólga bætist við á næstu mánuðum.
Ætli fólk að halda sömu jól og í fyrra, setja sömu steikina í ofninn og gefa sömu gjafirnar er því óhætt að áætla að útgjöldin verði enn meiri. En víða hefur þrengt að. Greiðslubyrði lána er þyngri, skattar hærri og ýmis annar kostnaður gæti jafnvel hafa dregið úr svigrúminu sem við höfðum (vonandi) til jólahalds í fyrra.
Auðvitað skiptir þetta máli. Það á ekki að þykja í lagi að jólin, sem eru árviss og dýr, séu óundirbúin þegar kemur að skipulagi heimilisfjármálanna. Það á ekki að vera valkostur að vona það besta, en grípa í greiðsludreifingar og önnur neyslulán þegar í ljós kemur að ekki var innistæða fyrir jólaútgjöldunum. Að sjálfsögðu er fjárhagsstaða fólks misjöfn og óhöpp eiga sér stað, en við skulum samt hysja upp um okkur og ganga úr skugga um að þessi jól valdi okkur hvorki óþægindum né skaða.
Tilboðin byrja snemma
Það gæti fljótlega farið að reyna á þetta. Útsöludagurinn Dagur einhleypra er 11. nóvember, Svartur föstudagur 27. nóvember og Stafrænn mánudagur 30. nóvember. Jólaverslunin hefst nú mun fyrr en á árum áður og hart er gengið fram í auglýsingum. Með afsláttum er þess freistað að láta neytandanum líða eins og hann sé að missa af eða hreinlega tapa peningum ef hann slær ekki til.
Markaðssetningin virkar. Við getum vissulega nálgast ýmislegt á kostakjörum, en treyst er á að neysla aukist. Með öðrum orðum er hætt við að við kaupum alls kyns óþarfa vegna þess að við hrífumst með í kaupæðinu.
Mikil samkeppni er milli smásöluaðila og ólíkra verslunarmáta. Þannig hefur netverslun Íslendinga aukist mikið fyrir jólin og í áhugaverðri samantekt Rannsóknarseturs verslunarinnar fyrr á árinu kom fram að erlend netverslun okkar nam yfir 34 milljörðum króna árið 2025 og jókst hún um 15% milli ára. Í desember einum nam hún yfir 4 milljörðum króna, sem var 20% aukning frá sama mánuði 2024.
Verum klók
En aftur að kostakjörunum. Hagsýnt fólk undirbýr nauðsynleg jólainnkaup snemma. Það passar upp á að eiga fyrir þeim, fylgist með útsölum og getur því gert betri kaup. En lykilatriðið er að það kaupir bara það sem stóð til og fær á því betri kjör. Það er galdurinn. Ekki kaupa meira, kauptu það sem þú ætlaðir hvort sem er að kaupa, en á betra verði.
Hvað mega jólin kosta?
Það er freistandi að byrja á jólagjafalistanum og athuga svo hvort við eigum fyrir honum, en ég mæli með öðru. Jólagjafalistinn og önnur útgjöld þurfa að taka mið af því svigrúmi sem til staðar er. Hvað getur þú lagt til hliðar til jóla, þegar búið er að greiða fyrir nauðsynjar? Við finnum fyrst út úr því hve stór jólasjóðurinn verður og getum í kjölfarið ráðstafað honum.
Notaðu jólareiknivélina hér á vefnum í þetta mikilvæga verkefni. Gefðu þér tíma í að hugsa um hin ýmsu útgjöld sem fylgt geta jólunum og tryggðu að jólasjóðurinn dugi fyrir kostnaðinum.
Við tökum ekki lán fyrir jólunum
Nú skulum við ákveða að héðan í frá verði aldrei tekin lán fyrir jólunum. Það er ekki gaman að geta ekki gefið þær jólagjafir sem við viljum, en skoðun okkar á jólagjöfum breytir ekki því sem fram kemur í heimabankanum. Við förum ekki í ferðalög sem við getum ekki staðgreitt, við förum ekki á jólatónleika ef svigrúmið er ekki til staðar.
Greiðsludreifingar leysa engan vanda, heldur færa hann bara til í tíma, eins og áður hefur verið rætt á þessum vettvangi. Það á enginn að hefja nýtt ár með jólin í eftirdragi, nema engir aðrir kostir hafi staðið til boða. Við þurfum nefnilega að greiða reikninga í janúar. Það þarf líka að kaupa í matinn þá. Ef við höfum sannfært okkur um að það sé ekki hægt að spara fyrir jólaútgjöldum þurfum við að spyrja okkur hvernig í ósköpunum við eigum þá að geta greitt enn hærri fjárhæðir síðar.
Nei, janúarlaunin þurfa að duga fyrir janúarmánuði. Við söfnum jafnt og þétt yfir árið svo við getum leyft okkur þau jól sem við viljum og því er gott að ræða tímanlega hvaða væntingar við höfum til jólanna. Kannski þarf að grípa í plan B. Ef til vill þarf til dæmis að gera ráð fyrir ódýrari gjöfum til fullorðinna eða stefna á færri dýrar skemmtanir, en ekki endilega. Kannski þarf bara skipulagningu.
Fáðu fróðleik sendan í fréttabréfum
Það kostar ekkert að skrá sig á póstlista og fá send fréttabréf um persónuleg fjármál og lífeyrismál.





