top of page
Writer's pictureBjörn Berg Gunnarsson

Hver eru áhrif þess að selja sumarbústað?



Fastir liðir í útvarpi á sumrin hafa lítið breyst á undanförnum árum. Bylgjulestin er með skottið fullt af stuði, veðurfræðingur svarar fyrir 11 gráður og rigningu og Magnús Hlynur segir frá hundi sem kann eitthvað voða áhugavert. Það er þó orðið nokkuð síðan við höfum heyrt viðtöl við hjón sem segjast hafa selt sumarbústaðinn og fengið í kjölfarið rukkun frá hinu opinbera.

Þetta voru þó árviss viðtöl. Ekki var nóg með skatturinn hnippti í Jón og Gunnu og bað um fjármagnstekjuskatt vegna sölunnar heldur þurftu þau að endurgreiða Tryggingastofnun í þokkabót.


Ný undanþága vegna sumarbústaða


Svona var þetta. Flestir sem seldu sumarbústaðinn greiddu fjármagnstekjuskatt (22%) af söluhagnaði eða helmingi söluverðs. Hagnaðurinn var svo færður sem tekjur á móti greiðslum almannatrygginga. Ef seljendur höfðu ekki tiltekið þann hagnað í tekjuáætlun hjá TR gat myndast krafa vegna ofgreidds lífeyris.

Nú hefur þessu þó verið breytt og sérstök undanþága tók gildi fyrir fáeinum árum. Þar er tekið fram að:


„...sala á frístundahúsnæði í eigu manna [sé] skattfrjáls ef heildarrúmmál eignarinnar og íbúðarhúsnæðis viðkomandi fer ekki fram úr 600 rúmmetrum hjá einstaklingi eða 1.200 rúmmetrum hjá hjónum. Skilyrði er að húsnæðið hafi verið nýtt af eigendum og ekki verið til útleigu gegn endurgjaldi og eignarhald varað að lágmarki í 7 ár.“

Það munar um þessa undanþágu. Ef heildarrúmmetrafjöldi í okkar eigu fer yfir þessi tilteknu mörk, greiðum við fjármagnstekjuskatt af því sem umfram er og verðum sömuleiðis skert hjá almannatryggingum, fáum við greiðslur þaðan. Ekki er óvarlegt að áætla að 1.200 rúmmetrar jafngildi um 500 fermetrum, en ef við erum óviss er þó er alltaf ráðlagt að ganga úr skugga um hvort við föllum innan marka undanþágunnar. Raunar er yfirleitt góð hugmynd að heyra hljóðið í endurskoðanda eða öðrum skattasérfræðingi þegar selja á eignir.



Viðtal um greinina í Bítinu á Bylgjunni


Tekur því að leigja bústaðinn út?


Þetta vekur eðlilega upp spurningar varðandi útleigu á frístundahúsnæði, til dæmis í skammtímaleigu á Airbnb. Það gæti hljómað freistandi að sækja þannig viðbótartekjur samhliða lífeyristöku. Við munum þó greiða 22% fjármagnstekjuskatt af leigutekjunum og ef við fáum greiðslur frá almannatryggingum, í gegnum TR, getum við áætlað að skerðingar nemi rétt um 30% til viðbótar (séum við í sambúð og þegar tekið hefur verið tillit til staðgreiðslu af greiðslum TR). Því getur farið þannig að útleigan skili okkur innan við helmingi teknanna í vasann auk þess sem sala eignarinnar gæti jafnvel orðið milljónum dýrari ef við missum undanþáguna og til stendur að selja bústaðinn.


Það er ekki verið að gera þetta einfalt fyrir okkur. En þegar um svona háar fjárhæðir getur verið að ræða er vissara að kynna sér málin.


Greinin birtist fyrst á Vísi

bottom of page