Bandaríkin meika ekki lengur cents
- Björn Berg Gunnarsson
- 3 days ago
- 2 min read

Undanfarna tvo áratugi hefur kostað meira að slá eitt bandarískt penní en sem nemur andvirði myntarinnar. Vegna verðhækkunar á sinki nemur kostnaðurinn nú 3,75 sentum og því komu þær ekki verulega á óvart fréttirnar frá Seðlabanka Bandaríkjanna í liðinni viku.
Síðasta penníið slegið 2026
Ákveðið hefur verið að klára að slá fyrirliggjandi lager tómra mynta en meira hráefni verður ekki pantað. Því stefnir í að á næsta árið verði síðasta sentinu komið í umferð, en þau hafa þá verið slegin þar í landi í 239 ár og eru í dag helmingur allra mynta í umferð. Litháinn Victor David Brenner hannaði núverandi útlit myntarinnar og hefur enginn peningur þar í landi haldið sama útliti lengur.
Myntsláttutap landsins vegna pennísins (eins og það er yfirleitt kallað) nemur nú um 10 milljörðum króna á ári, en á móti kemur að líkur er á að auka þurfi útgáfu 5 senta peninga á móti. Einnig er myntsláttutap af gerð þeirra, en hvert nikkel kostar um 13,8 sent.
Minnsta myntin í 168 ár
Penníið hefur verið minnsta mynt Bandaríkjanna frá því hætt var að slá hálft sent árið 1857. Ástæður þess að þetta skref er nú stigið er ekki aðeins myntsláttukostnaður, þar sem fjölmörg frumvörp hafa verið lögð fram þess efnis í gegnum tíðina, það fyrsta fyrir 35 árum.

Fátt kostar í dag undir 5 sentum í Bandaríkjunum og mikil sóun fylgir myntinni, en áætlað er að þar í landi sé andvirði um 8-9 milljarða íslenskra króna hent í ruslið ár hvert. Um 250 milljarðar senta eru í umferð í landinu, en væntanlega er verulega lítið hlutfall þeirra í formi sparnaðar eða daglegrar notkunar. Reikna má með að stærstur hluti sé að finna milli sæta og undir sessum.
Er krónan næst?
Nú þegar hefur sláttu 1 sents verið hætt í Kanada, Ástralíu og á Nýja-Sjálandi. En hvað er næst? Hér heima á Íslandi eru um 220 milljónir krónupeninga í væntanlega enn minni daglegri notkun en sentið vestanhafs og kostar um 3 krónur að slá hverja þeirra. Fátt kostar undir 5 krónum og nú er ekki einu sinni hægt að losa sig við krónurnar með því að greiða fyrir ferð í strætisvagni.
Það er þó kannski ágætt, þar sem ein stök strætóferð kostar í dag 2,7kg af krónupeningum.