top of page

180.000 króna raf­magns­reikn­ing­ur

  • Writer: Björn Berg Gunnarsson
    Björn Berg Gunnarsson
  • Dec 20, 2017
  • 1 min read

Updated: May 13, 2023

Nett sería á svalirnar þarf hvorki að vera dýr né fyrirferðarmikil en er ljómandi innlegg í hátíðirnar og baráttuna við myrkrið. Jólaljós draga vissulega úr áhrifum myrkasta skammdegisins en það er þó hægt að ganga of langt. Bandaríkjamaður að nafni Clark Griswold arkaði mun lengra en það árið 1989 þegar hann þakti húsið sitt í úthverfi Chicagoborgar með 25.000 hvítum ljósaperum, nágrönnunum til mikillar gremju.


10 kílóvatta gaman

Detti einhverjum hugulsömum Íslendingi í hug að gera slíkt hið sama er mikilvægt að muna eftir rafmagnsreikningnum. Þó perurnar verði eflaust rándýrar og uppsetningin tímafrek, myndu perur á borð við þær sem settar voru upp í umræddri kvikmynd, Christmas Vacation eftir John Hughes, eyða um það bil 10 kílóvöttum og þá er mælirinn í kjallaranum farinn að snúast ansi hratt.


Muna að spara!

Verði perurnar látnar lýsa allan sólarhringinn í heilan mánuð (minna má það nú varla vera) má áætla að reikningurinn verði um 180.560 krónur. Til að spara fyrir því þarf fjölskyldan að muna að stilla mánaðalegan sparnað að upphæð 15.000 kr. í netbankanum.


En LED?

En er eitthvað að marka þessa orkunotkun nú þegar flestir hafa skipt yfir í ljósdíóður (LED ljós)? Vissulega lítur dæmið allt öðruvísi út og orkureikningurinn fer niður fyrir 20.000 krónur. Hins vegar kosta LED perur um fimmfalt meira en þær gömlu, en ættu þó að endast mun lengur.


Þeir sem ekki hafa enn misst þráðinn mega að sjálfsögðu reyna að reikna dæmið til enda og samspil stofnkostnaðar, endingar og orkunotkunar, en þá mætti endilega gera ráð fyrir myrkvunargluggatjöldum fyrir grannana í leiðinni.


Greinin er birt með leyfi Íslandsbanka og birtist fyrst í Fréttablaðinu.

Betri yfirsýn yfir fjármálin

Skráðu þig á póstlista og fáðu send ókeypis fréttabréf um persónuleg fjármál og lífeyrismál. Fáðu sendan gagnlegan fróðleik sem hjálpar þér að taka betri fjárhagslegar ákvarðanir.

Persónuleg fjármál

Takk fyrir að skrá þig

Lífeyrismál

Takk fyrir að skrá þig

Um Björn Berg

Björn Berg Gunnarsson er sjálfstæður fjármálaráðgjafi og fyrirlesari í Reykjavík.

Hann hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 2007, þar af sem fræðslustjóri og deildarstjóri greiningardeildar Íslandsbanka. Björn rekur ráðgjafarþjónustuna BB rágjöf, býður upp á námskeið og fyrirlestra fyrir vinnustaði og einstaklinga og er reglulegur álitsgjafi um fjármál í íslenskum fjölmiðlum. Hann er höfundur bókarinnar Peningar (2021).

bottom of page