top of page

Sparnaðarhlutfall

Í stuttu máli

Sparnaðarhlutfall sýnir hversu stór hluti tekna fer í sparnað á tilteknu tímabili.

Nánar

Í einföldu heimilisbókhaldi má reikna sparnaðarhlutfall með því að deila sparnaði tímabilsins með ráðstöfunartekjum og margfalda með 100.

Mikilvægt er að ákveða hvað telst til sparnaðar. Sumir telja aðeins reglulegar millifærslur á sparnaðar- og fjárfestingarreikninga. Aðrir taka einnig með aukagreiðslur inn á lán eða framlag í lífeyrissparnað. Þó má almennt segja að sparnaðarhlutfall sé það hlutfall launa sem varið er í einhvers konar sparnað eða til aukinnar niðurgreiðslu lána.

Sparnaðarhlutfall segir ekki eitt og sér hvort fjárhagsstaðan sé góð. Heimili með tímabundið há útgjöld eða lágar tekjur getur verið með lágt hlutfall þótt fjármálin séu vel skipulögð.

Einfalt dæmi

Ef ráðstöfunartekjur eru 700.000 kr. og 70.000 kr. fara í sparnað er sparnaðarhlutfallið 10%. Reikningurinn er 70.000 ÷ 700.000 × 100.

Algengur misskilningur

Hærra sparnaðarhlutfall er ekki alltaf betra og er ólíklegt til að endast ef verið er að pína sig og það byggist á óhóflegum niðurskurði, skuldasöfnun eða því að nauðsynlegum útgjöldum sé frestað.

Tengd grein

Hvað er best að gera við afganginn?

Tengd reiknivél

Reglulegur sparnaður

Um Björn

Björn er sjálfstæður og óháður fjármálaráðgjafi sem haldið hefur fyrirlestra og námskeið um fjármál í nær tvo áratugi.

Hann er reglulegur álitsgjafi í fjölmiðlum, greinahöfundur og höfundur bókarinnar Peningar.

Fyrirvari

​Þær upplýsingar sem koma fram í myndböndum, greinum, ráðgjöf, fyrirlestrum, tölvupóstum, á glærum, í viðtölum og annars staðar sem fróðleik er deilt byggja á þeim upplýsingum sem fyrir lágu á þeim tíma og taldar voru áreiðanlegar. Ekki er hægt að ábyrgjast að allar þær upplýsingar séu réttar og ekki er skylt að uppfæra það efni sem aðgengilegt er á vefnum. Þær skoðanir og upplýsingar sem finna má á vefnum eru geta breyst án fyrirvara.

Þær eru einungis settar fram í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem hvatningu eða ráðgjöf/ráðleggingu um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum eða þjónustu. Mælt er með að leitað sé ráðgjafar og upplýsinga hjá þar til bærum aðilum áður en ráðist er í fjárfestingar, sótt er um greiðslur lífeyris og fleira. Einkum er mælt með að rætt sé við sérfræðinga í skattamálum í tengslum við mál er varða skattlagningu. Leitast er við að tryggja að upplýsingar séu réttar og uppfærðar á þeim tíma sem þær eru birtar. BB ráðgjöf ber þó ekki ábyrgð á ákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinganna eða tjóni sem kann að hljótast af notkun þeirra, nema skylt sé samkvæmt lögum.

Allt efni á vefnum, þar á meðal greinar, glærur, námskeiðsefni, reiknivélar, myndir, myndbönd og annað efni, er verndað samkvæmt höfundarréttarlögum nema annað sé tekið fram.. Notendur vefsins eru hvattir til að kynna sér fjármálaafurðir, þjónustu og fræðslu fjármálastofnana, lífeyrissjóða og annarra þjónustuaðila til að dýpka þekkingu sína á þeim málefnum sem um er rætt.

Allt kennsluefni, glærur, upptökur og annað efni sem afhent er þátttakendum er eingöngu ætlað til persónulegra nota nema skriflegt leyfi hafi verið veitt til annars.

Þessi fyrirvari á auk þess við um það efni sem deilt er á samfélagsmiðlum, svo sem á YouTube, LinkedIn, X, TikTok, Instagram og Facebook.

Niðurstöður reiknivéla byggja á þeim forsendum sem notandi slær inn eða sem liggja að baki útreikningum. Raunveruleg þróun getur orðið önnur en útreikningar gefa til kynna.

Ekki er veitt ráðgjöf samkvæmt hugtakingu „fjárfestingarráðgjöf“ eins og það er skilgreint í 4. tl. 1. mgr. í 4. gr. Mifid II tilskipunarinnar. Þjónustan felst í fræðslu, upplýsingagjöf og almennri ráðgjöf um fjármál einstaklinga.

Varðandi tímabókanir í bókunarkerfi Noona: Greiðslur vegna þjónustu sem bókuð er hjá Birni Berg berast til BB ráðgjafar slf. kt. 700125-1650. Greiðslur vegna þjónustu bókuð er hjá Jóni Bjarna Kristjánssyni berast til KRST lögmanna ehf. kt. 711204-2960. Vinsamlegast kynnið ykkur verðskrá og þjónustu KRST lögmanna á vefsíðunni www.krst.is . Greiðslur vegna þjónustu bókuð er hjá Baldvini Inga Sigurðssyni berast til Baldvins. Björn Berg ber ekki ábyrgð á þeirri þjónustu eða ráðgjöf sem veitt er af Jóni Bjarna og Baldvini Inga. 

bottom of page