top of page

Fjárhagsáætlun

Í stuttu máli

Fjárhagsáætlun er yfirlit yfir áætlaðar tekjur, útgjöld og sparnað á tilteknu tímabili. Með fjárhagsáætlun ákveður þú hvað gera á við peningana þína áður en þeim er ráðstafað.

Nánar

Fjárhagsáætlun er einfalt og mjög gagnlegt tæki fyrir heimilisfjármálin. Í henni eru tekjur bornar saman við regluleg útgjöld, óreglulegan kostnað, sparnað og fleira svo betur megi skipuleggja fjármál heimilisins og ná þeim markmiðum sem við setjum okkur. Áætlunin er mikilvægur þáttur í heimilisbókhaldi.

Góð áætlun þarf ekki að vera nákvæm upp á hverja krónu heldur fyrst og fremst raunhæf. Best er að byggja hana á raunverulegum færslum síðustu mánaða, gera ráð fyrir útgjöldum sem koma aðeins nokkrum sinnum á ári og yfirfara hana reglulega.

Fjárhagsáætlun og heimilisbókhald eru ekki alveg það sama. Áætlunin segir hvað þú hyggst gera en bókhaldið sýnir hvað gerðist í raun. Saman hjálpa þau þér að sjá hvort svigrúm sé til sparnaðar, niðurgreiðslu skulda eða annarra markmiða.

Einfalt dæmi

Einstaklingur eða par fær 800.000 kr. útborgaðar á mánuði. Áætluð útgjöld eru 650.000 kr. og 70.000 kr. eiga að fara í sparnað. Áætlað svigrúm er því 80.000 kr. Ef það hverfur reglulega þarf að kanna hvaða útgjöld voru vanmetin eða gleymdust.

Algengur misskilningur

Fjárhagsáætlun snýst ekki um að neita sér um allt sem er skemmtilegt. Hún snýst um að velja meðvitað hvað skiptir mestu, forgangsraða og tryggja að peningarnir nýtist sem best.

Tengd grein

Hvernig skipuleggjum við útgjöld heimilisins?

Tengd reiknivél

Tekjur og útgjöld við starfslok

Um Björn

Björn er sjálfstæður og óháður fjármálaráðgjafi sem haldið hefur fyrirlestra og námskeið um fjármál í nær tvo áratugi.

Hann er reglulegur álitsgjafi í fjölmiðlum, greinahöfundur og höfundur bókarinnar Peningar.

Fyrirvari

​Þær upplýsingar sem koma fram í myndböndum, greinum, ráðgjöf, fyrirlestrum, tölvupóstum, á glærum, í viðtölum og annars staðar sem fróðleik er deilt byggja á þeim upplýsingum sem fyrir lágu á þeim tíma og taldar voru áreiðanlegar. Ekki er hægt að ábyrgjast að allar þær upplýsingar séu réttar og ekki er skylt að uppfæra það efni sem aðgengilegt er á vefnum. Þær skoðanir og upplýsingar sem finna má á vefnum eru geta breyst án fyrirvara.

Þær eru einungis settar fram í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem hvatningu eða ráðgjöf/ráðleggingu um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum eða þjónustu. Mælt er með að leitað sé ráðgjafar og upplýsinga hjá þar til bærum aðilum áður en ráðist er í fjárfestingar, sótt er um greiðslur lífeyris og fleira. Einkum er mælt með að rætt sé við sérfræðinga í skattamálum í tengslum við mál er varða skattlagningu. Leitast er við að tryggja að upplýsingar séu réttar og uppfærðar á þeim tíma sem þær eru birtar. BB ráðgjöf ber þó ekki ábyrgð á ákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinganna eða tjóni sem kann að hljótast af notkun þeirra, nema skylt sé samkvæmt lögum.

Allt efni á vefnum, þar á meðal greinar, glærur, námskeiðsefni, reiknivélar, myndir, myndbönd og annað efni, er verndað samkvæmt höfundarréttarlögum nema annað sé tekið fram.. Notendur vefsins eru hvattir til að kynna sér fjármálaafurðir, þjónustu og fræðslu fjármálastofnana, lífeyrissjóða og annarra þjónustuaðila til að dýpka þekkingu sína á þeim málefnum sem um er rætt.

Allt kennsluefni, glærur, upptökur og annað efni sem afhent er þátttakendum er eingöngu ætlað til persónulegra nota nema skriflegt leyfi hafi verið veitt til annars.

Þessi fyrirvari á auk þess við um það efni sem deilt er á samfélagsmiðlum, svo sem á YouTube, LinkedIn, X, TikTok, Instagram og Facebook.

Niðurstöður reiknivéla byggja á þeim forsendum sem notandi slær inn eða sem liggja að baki útreikningum. Raunveruleg þróun getur orðið önnur en útreikningar gefa til kynna.

Ekki er veitt ráðgjöf samkvæmt hugtakingu „fjárfestingarráðgjöf“ eins og það er skilgreint í 4. tl. 1. mgr. í 4. gr. Mifid II tilskipunarinnar. Þjónustan felst í fræðslu, upplýsingagjöf og almennri ráðgjöf um fjármál einstaklinga.

Varðandi tímabókanir í bókunarkerfi Noona: Greiðslur vegna þjónustu sem bókuð er hjá Birni Berg berast til BB ráðgjafar slf. kt. 700125-1650. Greiðslur vegna þjónustu bókuð er hjá Jóni Bjarna Kristjánssyni berast til KRST lögmanna ehf. kt. 711204-2960. Vinsamlegast kynnið ykkur verðskrá og þjónustu KRST lögmanna á vefsíðunni www.krst.is . Greiðslur vegna þjónustu bókuð er hjá Baldvini Inga Sigurðssyni berast til Baldvins. Björn Berg ber ekki ábyrgð á þeirri þjónustu eða ráðgjöf sem veitt er af Jóni Bjarna og Baldvini Inga. 

bottom of page