top of page

Flýting lífeyristöku

Í stuttu máli

Flýting lífeyristöku er þegar lífeyrir er sóttur fyrr en viðmiðunaraldur sjóðsins segir til um.

Nánar

Flýting lífeyristöku getur hentað ef fólk þarf tekjur fyrr eða vill draga úr vinnu. Hún hefur þó yfirleitt áhrif á mánaðarlegar greiðslur sjóðsins, þar sem lífeyrinum er dreift yfir lengra tímabil auk þess sem örorkulífeyristrygging sjóðsins getur fallið niður.

Ákvörðunin þarf að taka mið af heilsu, tekjum, skattlagningu, séreign, skuldum, greiðslum frá Tryggingastofnun og öðrum eignum. Það er sjaldan eitt rétt svar fyrir alla.

Algengur misskilningur

Að taka lífeyri fyrr er ekki alltaf slæmt og ekki alltaf gott. Það fer eftir heildarmyndinni og því hvað peningarnir eiga að gera. Því miður er oft látið eins og flýting lífeyristöku sem töfralausn sem allir eigi að nýta sér, en svo er alls ekki.

Einfalt dæmi

Sjóðfélagi getur ákveðið að byrja að taka lífeyri 62 ára í stað 67 ára. Þá fær hann greiðslur fimm árum lengur en ella gegn því að mánaðarleg fjárhæð getur orðið lægri.

Tengd hugtök

Seinkun lífeyristöku, Viðmiðunaraldur ellilífeyrisgreiðslna, Ellilífeyrir, Hálfur lífeyrir, Séreign

Tengd grein

Lesa tengda grein

Tengd reiknivél

Tekjur og útgjöld við starfslok

Um Björn

Björn er sjálfstæður og óháður fjármálaráðgjafi sem haldið hefur fyrirlestra og námskeið um fjármál í nær tvo áratugi.

Hann er reglulegur álitsgjafi í fjölmiðlum, greinahöfundur og höfundur bókarinnar Peningar.

Fyrirvari

​Þær upplýsingar sem koma fram í myndböndum, greinum, ráðgjöf, fyrirlestrum, tölvupóstum, á glærum, í viðtölum og annars staðar sem fróðleik er deilt byggja á þeim upplýsingum sem fyrir lágu á þeim tíma og taldar voru áreiðanlegar. Ekki er hægt að ábyrgjast að allar þær upplýsingar séu réttar og ekki er skylt að uppfæra það efni sem aðgengilegt er á vefnum. Þær skoðanir og upplýsingar sem finna má á vefnum geta breyst án fyrirvara.

​​​

Þær eru einungis settar fram í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem hvatningu eða ráðgjöf/ráðleggingu um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum eða þjónustu. Mælt er með að leitað sé ráðgjafar og upplýsinga hjá þar til bærum aðilum áður en ráðist er í fjárfestingar, sótt er um greiðslur lífeyris og fleira. Einkum er mælt með að rætt sé við sérfræðinga í skattamálum í tengslum við mál er varða skattlagningu. Leitast er við að tryggja að upplýsingar séu réttar og uppfærðar á þeim tíma sem þær eru birtar. BB ráðgjöf ber þó ekki ábyrgð á ákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinganna eða tjóni sem kann að hljótast af notkun þeirra, nema skylt sé samkvæmt lögum.

​​​​​

Allt efni á vefnum, þar á meðal greinar, glærur, námskeiðsefni, reiknivélar, myndir, myndbönd og annað efni, er verndað samkvæmt höfundarréttarlögum nema annað sé tekið fram. Notendur vefsins eru hvattir til að kynna sér fjármálaafurðir, þjónustu og fræðslu fjármálastofnana, lífeyrissjóða og annarra þjónustuaðila til að dýpka þekkingu sína á þeim málefnum sem um er rætt.

​

Allt kennsluefni, glærur, upptökur og annað efni sem afhent er þátttakendum er eingöngu ætlað til persónulegra nota nema skriflegt leyfi hafi verið veitt til annars.​

​​

Þessi fyrirvari á auk þess við um það efni sem deilt er á samfélagsmiðlum, svo sem á YouTube, LinkedIn, X, TikTok, Instagram og Facebook.

​

Niðurstöður reiknivéla byggja á þeim forsendum sem notandi slær inn eða sem liggja að baki útreikningum. Raunveruleg þróun getur orðið önnur en útreikningar gefa til kynna.

​

Ekki er veitt ráðgjöf samkvæmt hugtakinu „fjárfestingarráðgjöf“ eins og það er skilgreint í 4. tl. 1. mgr. í 4. gr. Mifid II tilskipunarinnar. Þjónustan felst í fræðslu, upplýsingagjöf og almennri ráðgjöf um fjármál einstaklinga.​

​

Varðandi tímabókanir í bókunarkerfi Noona: Greiðslur vegna þjónustu sem bókuð er hjá Birni Berg berast til BB ráðgjafar slf. kt. 700125-1650. Greiðslur vegna þjónustu sem bókuð er hjá Jóni Bjarna Kristjánssyni berast til KRST lögmanna ehf. kt. 711204-2960. Vinsamlegast kynnið ykkur verðskrá og þjónustu KRST lögmanna á vefsíðunni www.krst.is . Greiðslur vegna þjónustu sem bókuð er hjá Baldvini Inga Sigurðssyni berast til Baldvins. Björn Berg ber ekki ábyrgð á þeirri þjónustu eða ráðgjöf sem veitt er af Jóni Bjarna og Baldvini Inga. ​

​

bottom of page