top of page
  • Writer's pictureBjörn Berg Gunnarsson

Hálfur lífeyrir

Skerðingar á greiðslum Tryggingastofnunar (TR) eru með eldfimari umræðuefnum. Sitt sýnist hverjum um hlutverk stofnunarinnar og hvað teljist sanngjarnt þegar kemur að samspili tekna og greiðslna en lítið er þó rætt um áhugaverðan og tiltölulega nýjan valkost sem nefnist hálfur lífeyrir.


Greiðslur lífeyris TR skerðast almennt vegna tekna. Hlutfallið er 45% hjá sambúðarfólki og skerðast þeir sem búa einir aukalega um 11,9% vegna heimilisuppbótar. Á þessu eru þó undantekningar. Almennt frítekjumark er 25.000 kr. á mánuði og að auki er sérstakt mánaðarlegt 200.000 kr. frítekjumark vegna launatekna eða 2,4 milljónir króna á ári. Þá hefur viðbótarlífeyrissparnaður engin áhrif á greiðslur ellilífeyris stofnunarinnar. Þetta á við um hefðbundna töku greiðslna frá stofnuninni en aðrar reglur gilda þó sé sótt um greiðslur hálfs lífeyris.


Með hálfum lífeyri er átt við að sótt sé um töku hálfra réttinda hjá lífeyrissjóðum (hinn helmingurinn bíður þá fullrar töku) og sömuleiðis töku hálfra réttinda hjá TR. Eins og áður segir er hálf taka lífeyris hjá TR frábrugðin hefðbundinni fullri töku og munar þar mestu um að almennt frítekjumark nemur 325.000 krónum á mánuði og auk þess 200.000 krónum vegna launatekna. Tekjur umfram frítekjumarkið skerða greiðslur stofnunarinnar um 45%.


Ekki geta allir sótt um hálfan lífeyri

Nokkur skilyrði eru fyrir töku hálfs lífeyris:

  • Umsækjandi þarf að vera orðinn 65 ára

  • Umsækjandi þarf að vera á vinnumarkaði en ekki í meira en hálfu starfshlutfalli

  • Sækja þarf um hjá Tryggingastofnun og öllum lífeyrissjóðum sem greitt hefur verið í

Taka hálfs lífeyris getur hentað ýmsum, t.d. þeim sem hyggjast vinna fram yfir 65 ára aldur. Áður en haldið er af stað er þó mikilvægt að kanna hvort lífeyrissjóðirnir séu tilbúnir til þess að greiða hálfan lífeyri og hvort taka hans henti þér og þínum aðstæðum. Góðar og vandaðar upplýsingar og reiknivélar um málefnið má nálgast á vef Tryggingastofnunar.



Greinin er birt með leyfi Íslandsbanka og birtist fyrst á vef bankans.

bottom of page