top of page

Verðtryggt lán

Í stuttu máli

Á verðtryggðu láni breytist höfuðstóllinn eftir tiltekinni verðvísitölu, yfirleitt vísitölu neysluverðs.

Nánar

Verðbætur, vegna t.d. hækkunar vísitölu neysluverðs mánuðinn á undan, leggjast ofan á eftirstöðvar lánsins. Þannig getur skuldin vaxið þótt greitt sé samviskusamlega af láninu. Vextirnir eru aðeins hluti heildarkostnaðar lánsins.

Til að bera saman lán þarf að skoða þróun eftirstöðva þeirra og greiðslubyrði yfir tíma. Lægri greiðsla í dag getur fylgt hægari eignamyndun en fólk reiknar með, einkum á verðtryggðum lánum.

Algengur misskilningur

Verðtryggð lán geta virðst ódýrari en óverðtryggð þar sem greiðslubyrði þeirra í upphafi er yfirleitt nokkuð lægri. Greiðslubyrðin hækkar þó yfirleitt allan lánstímann og lánið gæti jafnvel orðið umtalsvert dýrara þegar upp er staðið.

Einfalt dæmi

Verðtryggt lán getur hækkað, þrátt fyrir að greitt sé samviskusamlega af því þar sem ekki er rukkað fyrir verðtryggingu með sama hætti og vextir eru innheimtir. Þeir vextir sem falla á lánið eru staðgreiddir, sem og sá hluti höfuðstóls lánsins sem greiða á í hverjum mánuði, en verðtryggingin (hækkun eða lækkun vegna verðbólgu) er ekki rukkuð strax. Þess í stað er henni smurt yfir þær greiðslur sem eftir eru af láninu og rukkaðar síðar.

Tengd grein

​

Tengd reiknivél

​

Um Björn

Björn er sjálfstæður og óháður fjármálaráðgjafi sem haldið hefur fyrirlestra og námskeið um fjármál í nær tvo áratugi.

Hann er reglulegur álitsgjafi í fjölmiðlum, greinahöfundur og höfundur bókarinnar Peningar.

Fyrirvari

​Þær upplýsingar sem koma fram í myndböndum, greinum, ráðgjöf, fyrirlestrum, tölvupóstum, á glærum, í viðtölum og annars staðar sem fróðleik er deilt byggja á þeim upplýsingum sem fyrir lágu á þeim tíma og taldar voru áreiðanlegar. Ekki er hægt að ábyrgjast að allar þær upplýsingar séu réttar og ekki er skylt að uppfæra það efni sem aðgengilegt er á vefnum. Þær skoðanir og upplýsingar sem finna má á vefnum geta breyst án fyrirvara.

​​​

Þær eru einungis settar fram í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem hvatningu eða ráðgjöf/ráðleggingu um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum eða þjónustu. Mælt er með að leitað sé ráðgjafar og upplýsinga hjá þar til bærum aðilum áður en ráðist er í fjárfestingar, sótt er um greiðslur lífeyris og fleira. Einkum er mælt með að rætt sé við sérfræðinga í skattamálum í tengslum við mál er varða skattlagningu. Leitast er við að tryggja að upplýsingar séu réttar og uppfærðar á þeim tíma sem þær eru birtar. BB ráðgjöf ber þó ekki ábyrgð á ákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinganna eða tjóni sem kann að hljótast af notkun þeirra, nema skylt sé samkvæmt lögum.

​​​​​

Allt efni á vefnum, þar á meðal greinar, glærur, námskeiðsefni, reiknivélar, myndir, myndbönd og annað efni, er verndað samkvæmt höfundarréttarlögum nema annað sé tekið fram. Notendur vefsins eru hvattir til að kynna sér fjármálaafurðir, þjónustu og fræðslu fjármálastofnana, lífeyrissjóða og annarra þjónustuaðila til að dýpka þekkingu sína á þeim málefnum sem um er rætt.

​

Allt kennsluefni, glærur, upptökur og annað efni sem afhent er þátttakendum er eingöngu ætlað til persónulegra nota nema skriflegt leyfi hafi verið veitt til annars.​

​​

Þessi fyrirvari á auk þess við um það efni sem deilt er á samfélagsmiðlum, svo sem á YouTube, LinkedIn, X, TikTok, Instagram og Facebook.

​

Niðurstöður reiknivéla byggja á þeim forsendum sem notandi slær inn eða sem liggja að baki útreikningum. Raunveruleg þróun getur orðið önnur en útreikningar gefa til kynna.

​

Ekki er veitt ráðgjöf samkvæmt hugtakinu „fjárfestingarráðgjöf“ eins og það er skilgreint í 4. tl. 1. mgr. í 4. gr. Mifid II tilskipunarinnar. Þjónustan felst í fræðslu, upplýsingagjöf og almennri ráðgjöf um fjármál einstaklinga.​

​

Varðandi tímabókanir í bókunarkerfi Noona: Greiðslur vegna þjónustu sem bókuð er hjá Birni Berg berast til BB ráðgjafar slf. kt. 700125-1650. Greiðslur vegna þjónustu sem bókuð er hjá Jóni Bjarna Kristjánssyni berast til KRST lögmanna ehf. kt. 711204-2960. Vinsamlegast kynnið ykkur verðskrá og þjónustu KRST lögmanna á vefsíðunni www.krst.is . Greiðslur vegna þjónustu sem bókuð er hjá Baldvini Inga Sigurðssyni berast til Baldvins. Björn Berg ber ekki ábyrgð á þeirri þjónustu eða ráðgjöf sem veitt er af Jóni Bjarna og Baldvini Inga. ​

​

bottom of page

Viltu sjá meira frá Birni Berg í Google-leit?

Veldu Björn Berg sem heimild hjá Google ↗