top of page

Skattþrep

Í stuttu máli

Skattur getur verið mis hár og á tilteknum tekjubilum (skattþrepum) getur verið greidd önnur prósenta en af öðrum.

Nánar

Þegar tekjur fara upp fyrir mörk skattþreps er skatturinn hærri af þeim hluta sem fellur í næsta þrep fyrir ofan. Tekjurnar sem fyrir voru í neðra þrepinu færast ekki allar upp.

Þetta skiptir máli við launahækkun, aukavinnu, úttekt lífeyris og greiðslur frá fleiri en einum aðila. Viðmiðunarfjárhæðir og hlutföll geta breyst á milli ára. Vegna skattþrepa eykst skattgreiðsla ekki aðeins vegna hærri tekna heldur gott betur. Því geta skattþrep dregið úr hvata til vinnu og sparnaðar.

Algengur misskilningur

Launahækkun sem færir þig í hærra þrep veldur ekki því ein og sér að allar tekjurnar verði skattlagðar með hærri prósentu.

Einfalt dæmi

Í einföldu, tilbúnu kerfi er 20% skattur greiddur af fyrstu 500.000 kr. sem einstaklingur þénar og 25% skattur af næstu 500.000 krónunum. Þegar skatturinn fer yfir eina milljón er ekki greiddur 25% skattur af öllum tekjunum, heldur aðeins þeim sem eru umfram 500.000 kr. á mánuði.

Tengd hugtök

Jaðarskattur, Meðalskattur, Tekjuskattur, Persónuafsláttur

Tengd grein

​

Tengd reiknivél

​

Um Björn

Björn er sjálfstæður og óháður fjármálaráðgjafi sem haldið hefur fyrirlestra og námskeið um fjármál í nær tvo áratugi.

Hann er reglulegur álitsgjafi í fjölmiðlum, greinahöfundur og höfundur bókarinnar Peningar.

Fyrirvari

​Þær upplýsingar sem koma fram í myndböndum, greinum, ráðgjöf, fyrirlestrum, tölvupóstum, á glærum, í viðtölum og annars staðar sem fróðleik er deilt byggja á þeim upplýsingum sem fyrir lágu á þeim tíma og taldar voru áreiðanlegar. Ekki er hægt að ábyrgjast að allar þær upplýsingar séu réttar og ekki er skylt að uppfæra það efni sem aðgengilegt er á vefnum. Þær skoðanir og upplýsingar sem finna má á vefnum geta breyst án fyrirvara.

​​​

Þær eru einungis settar fram í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem hvatningu eða ráðgjöf/ráðleggingu um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum eða þjónustu. Mælt er með að leitað sé ráðgjafar og upplýsinga hjá þar til bærum aðilum áður en ráðist er í fjárfestingar, sótt er um greiðslur lífeyris og fleira. Einkum er mælt með að rætt sé við sérfræðinga í skattamálum í tengslum við mál er varða skattlagningu. Leitast er við að tryggja að upplýsingar séu réttar og uppfærðar á þeim tíma sem þær eru birtar. BB ráðgjöf ber þó ekki ábyrgð á ákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinganna eða tjóni sem kann að hljótast af notkun þeirra, nema skylt sé samkvæmt lögum.

​​​​​

Allt efni á vefnum, þar á meðal greinar, glærur, námskeiðsefni, reiknivélar, myndir, myndbönd og annað efni, er verndað samkvæmt höfundarréttarlögum nema annað sé tekið fram. Notendur vefsins eru hvattir til að kynna sér fjármálaafurðir, þjónustu og fræðslu fjármálastofnana, lífeyrissjóða og annarra þjónustuaðila til að dýpka þekkingu sína á þeim málefnum sem um er rætt.

​

Allt kennsluefni, glærur, upptökur og annað efni sem afhent er þátttakendum er eingöngu ætlað til persónulegra nota nema skriflegt leyfi hafi verið veitt til annars.​

​​

Þessi fyrirvari á auk þess við um það efni sem deilt er á samfélagsmiðlum, svo sem á YouTube, LinkedIn, X, TikTok, Instagram og Facebook.

​

Niðurstöður reiknivéla byggja á þeim forsendum sem notandi slær inn eða sem liggja að baki útreikningum. Raunveruleg þróun getur orðið önnur en útreikningar gefa til kynna.

​

Ekki er veitt ráðgjöf samkvæmt hugtakinu „fjárfestingarráðgjöf“ eins og það er skilgreint í 4. tl. 1. mgr. í 4. gr. Mifid II tilskipunarinnar. Þjónustan felst í fræðslu, upplýsingagjöf og almennri ráðgjöf um fjármál einstaklinga.​

​

Varðandi tímabókanir í bókunarkerfi Noona: Greiðslur vegna þjónustu sem bókuð er hjá Birni Berg berast til BB ráðgjafar slf. kt. 700125-1650. Greiðslur vegna þjónustu sem bókuð er hjá Jóni Bjarna Kristjánssyni berast til KRST lögmanna ehf. kt. 711204-2960. Vinsamlegast kynnið ykkur verðskrá og þjónustu KRST lögmanna á vefsíðunni www.krst.is . Greiðslur vegna þjónustu sem bókuð er hjá Baldvini Inga Sigurðssyni berast til Baldvins. Björn Berg ber ekki ábyrgð á þeirri þjónustu eða ráðgjöf sem veitt er af Jóni Bjarna og Baldvini Inga. ​

​

bottom of page

Viltu sjá meira frá Birni Berg í Google-leit?

Veldu Björn Berg sem heimild hjá Google ↗