Nánar
Frjáls séreign getur reynst vel og boðið upp á mikinn sveigjanleika við starfslok. Hún getur nýst til að brúa bil, hækka tekjur fyrstu árin eftir starfslok eða mæta óvæntum útgjöldum.
Útgreiðslureglur ráðast þó af tegund séreignar, aldri, skilyrðum og samningi við vörsluaðila. Þess vegna þarf alltaf að skoða hvaða tegund séreignar er um að ræða áður en áætlað er að ganga á hana. Þannig getur verið munur á því hvar séreignin er hýst og hvort um sé að ræða viðbótarlífeyrissparnað eða aðrar tegundir séreignar.
Algengur misskilningur
Frjáls séreign þýðir ekki að hægt sé að taka féð út hvenær sem er. Hún er frjálsari en bundin séreign, en lýtur samt útgreiðslureglum. Þannig er yfirleitt 60 ára aldurstakmark á úttekt og hjá sumum vörsluaðilum er úttektarfyrirkomulagið ekki að fullu frjálst.
Einfalt dæmi
Einstaklingur á frjálsa séreign sem hann getur byrjað að taka út þegar skilyrði um aldur og útgreiðslu eru uppfyllt, til dæmis við sextugt. Hann getur sótt það sem honum hentar, þegar hann vill.
Tengd hugtök
Bundin séreign, Séreign, Viðbótarlífeyrissparnaður, Útgreiðsla séreignar, Séreignarsjóður
Fyrirvari
Þær upplýsingar sem koma fram í myndböndum, greinum, ráðgjöf, fyrirlestrum, tölvupóstum, á glærum, í viðtölum og annars staðar sem fróðleik er deilt byggja á þeim upplýsingum sem fyrir lágu á þeim tíma og taldar voru áreiðanlegar. Ekki er hægt að ábyrgjast að allar þær upplýsingar séu réttar og ekki er skylt að uppfæra það efni sem aðgengilegt er á vefnum. Þær skoðanir og upplýsingar sem finna má á vefnum geta breyst án fyrirvara.
Þær eru einungis settar fram í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem hvatningu eða ráðgjöf/ráðleggingu um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum eða þjónustu. Mælt er með að leitað sé ráðgjafar og upplýsinga hjá þar til bærum aðilum áður en ráðist er í fjárfestingar, sótt er um greiðslur lífeyris og fleira. Einkum er mælt með að rætt sé við sérfræðinga í skattamálum í tengslum við mál er varða skattlagningu. Leitast er við að tryggja að upplýsingar séu réttar og uppfærðar á þeim tíma sem þær eru birtar. BB ráðgjöf ber þó ekki ábyrgð á ákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinganna eða tjóni sem kann að hljótast af notkun þeirra, nema skylt sé samkvæmt lögum.
Allt efni á vefnum, þar á meðal greinar, glærur, námskeiðsefni, reiknivélar, myndir, myndbönd og annað efni, er verndað samkvæmt höfundarréttarlögum nema annað sé tekið fram. Notendur vefsins eru hvattir til að kynna sér fjármálaafurðir, þjónustu og fræðslu fjármálastofnana, lífeyrissjóða og annarra þjónustuaðila til að dýpka þekkingu sína á þeim málefnum sem um er rætt.
Allt kennsluefni, glærur, upptökur og annað efni sem afhent er þátttakendum er eingöngu ætlað til persónulegra nota nema skriflegt leyfi hafi verið veitt til annars.
Þessi fyrirvari á auk þess við um það efni sem deilt er á samfélagsmiðlum, svo sem á YouTube, LinkedIn, X, TikTok, Instagram og Facebook.
Niðurstöður reiknivéla byggja á þeim forsendum sem notandi slær inn eða sem liggja að baki útreikningum. Raunveruleg þróun getur orðið önnur en útreikningar gefa til kynna.
Ekki er veitt ráðgjöf samkvæmt hugtakinu „fjárfestingarráðgjöf“ eins og það er skilgreint í 4. tl. 1. mgr. í 4. gr. Mifid II tilskipunarinnar. Þjónustan felst í fræðslu, upplýsingagjöf og almennri ráðgjöf um fjármál einstaklinga.
Varðandi tímabókanir í bókunarkerfi Noona: Greiðslur vegna þjónustu sem bókuð er hjá Birni Berg berast til BB ráðgjafar slf. kt. 700125-1650. Greiðslur vegna þjónustu sem bókuð er hjá Jóni Bjarna Kristjánssyni berast til KRST lögmanna ehf. kt. 711204-2960. Vinsamlegast kynnið ykkur verðskrá og þjónustu KRST lögmanna á vefsíðunni www.krst.is . Greiðslur vegna þjónustu sem bókuð er hjá Baldvini Inga Sigurðssyni berast til Baldvins. Björn Berg ber ekki ábyrgð á þeirri þjónustu eða ráðgjöf sem veitt er af Jóni Bjarna og Baldvini Inga.
