top of page

Eign

Í stuttu máli

Eign er verðmæti sem einstaklingur eða heimili á og getur haft fjárhagslegt gildi.

Nánar

Til eigna heimilis geta meðal annars talist fasteignir, ökutæki, bankainnstæður og verðbréf.

Ekki hafa þó allar eigur jafn mikla þýðingu í fjárhagslegu tilliti. Venjulegir húsmunir og fatnaður hafa oft lítið endursöluverð þótt þeir hafi mikið notagildi fyrir eigandann og kostað sitt.

Eign segir heldur ekki alla söguna. Fasteign að verðmæti 80 milljónir króna er stór eign en ef 65 milljóna króna lán hvílir á henni er nettóverðmætið mun lægra.

Einfalt dæmi

Íbúð metin á 70 milljónir króna, bíll að verðmæti 4 milljónir og 2 milljónir á bankareikningum eru samtals 76 milljónir króna í eignum.

Algengur misskilningur

Kaupverð eignar er ekki alltaf núverandi verðmæti hennar. Bíll getur lækkað í verði en fasteign eða verðbréf geta bæði hækkað og lækkað.

Tengd hugtök

Skuld, Nettóeign, Lausafé, Fasteignamat, Verðbréf

Tengd grein

Skoðaðu fleiri greinar um fjármál

Tengd reiknivél

Skoðaðu allar reiknivélarnar
bottom of page