top of page

Greiðslubyrði

Í stuttu máli

Greiðslubyrði er sú fjárhæð sem greiða þarf reglulega af láni eða skuld. Getur samanstaðið af afborgunum, vöxtum og verðtryggingu.

Nánar

Greiðslubyrði segir til um hversu mikið þarf að greiða af láni í hverjum mánuði. Hún getur verið gefin upp sem krónutala eða sem hlutfall af ráðstöfunartekjum.

Í einföldu heimilisbókhaldi er gagnlegt að leggja saman reglulegar greiðslur af öllum lánum. Í opinberum reglum um fasteignalán hefur hugtakið hins vegar sértækari merkingu og tengist greiðslum af lánum sem tryggð eru með veði í fasteign.Til dæmis eru sett ákveðin hámörk á greiðslubyrði lána, sem geta verið ólík eftir því hvort verið er til dæmis að kaupa fyrstu fasteign eða ekki.

Lág greiðslubyrði getur auðveldað rekstur heimilisins til skamms tíma en segir ekki ein og sér hvort lán sé hagstætt. Langur lánstími eða verðtrygging getur til dæmis lækkað mánaðargreiðsluna en aukið heildarkostnaðinn.

Einfalt dæmi

Ráðstöfunartekjur eru 750.000 kr. og mánaðarlegar greiðslur af lánum eru 225.000 kr. Greiðslubyrðin er 225.000 kr. eða 30% af ráðstöfunartekjum.

Algengur misskilningur

Greiðslubyrði og heildarkostnaður eru ekki það sama. Lán með lægri mánaðargreiðslu getur kostað meira þegar allar greiðslur yfir lánstímann eru lagðar saman.

Tengd grein

Skoðaðu fleiri greinar um fjármál

Tengd reiknivél

Snjóboltaaðferðin

Um Björn

Björn er sjálfstæður og óháður fjármálaráðgjafi sem haldið hefur fyrirlestra og námskeið um fjármál í nær tvo áratugi.

Hann er reglulegur álitsgjafi í fjölmiðlum, greinahöfundur og höfundur bókarinnar Peningar.

Fyrirvari

​Þær upplýsingar sem koma fram í myndböndum, greinum, ráðgjöf, fyrirlestrum, tölvupóstum, á glærum, í viðtölum og annars staðar sem fróðleik er deilt byggja á þeim upplýsingum sem fyrir lágu á þeim tíma og taldar voru áreiðanlegar. Ekki er hægt að ábyrgjast að allar þær upplýsingar séu réttar og ekki er skylt að uppfæra það efni sem aðgengilegt er á vefnum. Þær skoðanir og upplýsingar sem finna má á vefnum eru geta breyst án fyrirvara.

Þær eru einungis settar fram í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem hvatningu eða ráðgjöf/ráðleggingu um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum eða þjónustu. Mælt er með að leitað sé ráðgjafar og upplýsinga hjá þar til bærum aðilum áður en ráðist er í fjárfestingar, sótt er um greiðslur lífeyris og fleira. Einkum er mælt með að rætt sé við sérfræðinga í skattamálum í tengslum við mál er varða skattlagningu. Leitast er við að tryggja að upplýsingar séu réttar og uppfærðar á þeim tíma sem þær eru birtar. BB ráðgjöf ber þó ekki ábyrgð á ákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinganna eða tjóni sem kann að hljótast af notkun þeirra, nema skylt sé samkvæmt lögum.

Allt efni á vefnum, þar á meðal greinar, glærur, námskeiðsefni, reiknivélar, myndir, myndbönd og annað efni, er verndað samkvæmt höfundarréttarlögum nema annað sé tekið fram.. Notendur vefsins eru hvattir til að kynna sér fjármálaafurðir, þjónustu og fræðslu fjármálastofnana, lífeyrissjóða og annarra þjónustuaðila til að dýpka þekkingu sína á þeim málefnum sem um er rætt.

Allt kennsluefni, glærur, upptökur og annað efni sem afhent er þátttakendum er eingöngu ætlað til persónulegra nota nema skriflegt leyfi hafi verið veitt til annars.

Þessi fyrirvari á auk þess við um það efni sem deilt er á samfélagsmiðlum, svo sem á YouTube, LinkedIn, X, TikTok, Instagram og Facebook.

Niðurstöður reiknivéla byggja á þeim forsendum sem notandi slær inn eða sem liggja að baki útreikningum. Raunveruleg þróun getur orðið önnur en útreikningar gefa til kynna.

Ekki er veitt ráðgjöf samkvæmt hugtakingu „fjárfestingarráðgjöf“ eins og það er skilgreint í 4. tl. 1. mgr. í 4. gr. Mifid II tilskipunarinnar. Þjónustan felst í fræðslu, upplýsingagjöf og almennri ráðgjöf um fjármál einstaklinga.

Varðandi tímabókanir í bókunarkerfi Noona: Greiðslur vegna þjónustu sem bókuð er hjá Birni Berg berast til BB ráðgjafar slf. kt. 700125-1650. Greiðslur vegna þjónustu bókuð er hjá Jóni Bjarna Kristjánssyni berast til KRST lögmanna ehf. kt. 711204-2960. Vinsamlegast kynnið ykkur verðskrá og þjónustu KRST lögmanna á vefsíðunni www.krst.is . Greiðslur vegna þjónustu bókuð er hjá Baldvini Inga Sigurðssyni berast til Baldvins. Björn Berg ber ekki ábyrgð á þeirri þjónustu eða ráðgjöf sem veitt er af Jóni Bjarna og Baldvini Inga. 

bottom of page