top of page
HVAÐ ER INNIFALIÐ?
Þarfagreining
Metnar eru þarfir hvers og eins á sviði fjármála og lagalegs öryggis
Tengslanet
Sterkt tengslanet við endurskoðendur, fasteignasala og aðra trausta sérfræðinga
VINNUSTOFURNAR
Dagskrá
Helstu áskoranir
Farið er yfir helstu áskoranir afreksmanna. Hvað þarf að kunna og hvað er best að fela öðrum. Hvaða markmið vilja þátttakendur setja sér, hverjar eru helstu áhyggjur og hvar skortir þekkingu?
Lagaleg staða
Helstu lykilatriði varðandi öryggi. Litið er á samninga, réttindi og ýmis lögfræðileg álitaefni sem passa þarf upp á. Hvað áhrif hefur að gifta sig?
Betri árangur
Persónuleg fjármál með áherslu á atvinnumenn. Hvernig náum við fjárhagslegum markmiðum okkar?
Skattar og rekstur
Endurskoðandi fer yfir skattlagningu milli landa, stofnun félags og helstu þætti sem atvinnumenn þurfa að hafa í huga varðandi skattamál og rekstur.
Eftir ferilinn
Fjárfestingar, skuldir og lífeyrismál. Hvað ætlum við að eiga til þegar við hættum? Hvernig undirbúum við okkur?
Næstu skref
Rætt um framtíðina og næstu skref. Hvernig nær hver og einn sem bestum árangri?
Hópurinn
-
Hámark 6 þátttakendur í einu
-
Allir þátttakendur skrifa undir trúnaðaryfirlýsingu
-
Þátttakendur eru valdir með gát og þess gætt að þeir henti saman
-
Hópurinn er lokaður og ætlaður einstaklingum, ekki pörum.
Hefur þú áhuga á þátttöku?
Hafðu samband við Björn og Pál í forminu.
FJÁRMÁLARÁÐGJAFI
Björn Berg
Björn er sjálfstæður og óháður fjármálaráðgjafi sem haldið hefur fyrirlestra og námskeið um fjármál í nær tvo áratugi.
Hann var áður deildarstjóri greiningardeildar Íslandsbanka og fræðslustjóri bankans. Björn er reglulegur álitsgjafi í fjölmiðlum, greinahöfundur og höfundur bókarinnar Peningar.

Hvað þetta er ekki
-
Þetta er ekki fjárfestingarráðgjöf þar sem mælt er með tilteknum vörum eða sjóðum
-
Engar þóknanir eru greiddar af bönkum, tryggingafélögum eða öðrum aðila fyrir að hvetja til kaupa á þjónustu eða vörum
-
Þátttakendur eru ekki skuldbundnir til að kaupa neina þjónustu frá þeim sérfræðingum sem þeir eru tengdir við
bottom of page

