top of page

Verðmæti og árangur í NBA

  • Writer: Björn Berg Gunnarsson
    Björn Berg Gunnarsson
  • Sep 6, 2017
  • 2 min read

Skilar bættur árangur meiri tekjumöguleikum? Eða er kannski líklegra að þau lið sem bestan árangur sýna fjárhagslega standi sig þar af leiðandi betur á vellinum? Hvort sem eggið eða hænan kemur á undan er jákvætt samband á milli árangurs og aukningar í verðmæti liðanna í bandarísku NBA deildinni.



Meistararnir í sérflokki

Tímaritið Forbes áætlar árlega verðmæti NBA liðanna 30. Undanfarinn áratug hefur virði félaganna aukist að meðaltali um 282% en gæðunum hefur þó verið talsvert misskipt. Vegna efnahagsástandsins í Detroit þarf ekki að koma á óvart að Pistons rekur lestina (110% vöxtur) á meðan langmestur uppgangur hefur verið hjá meisturum Golden State Warriors (874%).


Ólík staða New York Knicks og San Antonio

Ef við berum þennan vöxt saman við vinningshlutfall í deildarkeppninni á sama tímabili kemur ýmislegt áhugavert í ljós. Almennt virðast þessar tvær breytur haldast í hendur, en áberandi undantekningar er þó að finna. Hvers vegna ætli lærisveinar Gregg Popovich í San Antonio Spurs (70% sigurhlutfall, 201% aukning í verðmæti) hafi náð mun betri árangri en fjármálin gefa tilefni til að áætla á meðan New York liðin Knicks (41% og 457%) og Nets (37% og 454%) hafa staðið sig svo áberandi illa?


Þrátt fyrir að San Antonio borg hafi vaxið hraðast allra stórborga Bandaríkjanna á fyrsta áratug aldarinnar jókst áætlað verðmæti stuðningsmanna í New York þrefalt meira. Sömu sögu er að segja af verðmæti vörumerkja Nets og Knicks, sem vaxið hafa fimmfalt á meðan Spurs hafa tæplega þrefaldast.



Jöfnuðurinn dugar ekki til

Launaþak NBA-deildarinnar og fyrirkomulag nýliðavalsins eiga að tryggja sem jafnasta möguleika og eru liður í samtryggingu eigenda liðanna 30, sem í sameiningu eiga deildina. Ekki er um neina Meistaradeildarpeninga að ræða eins og í fótboltanum og enginn beinn fjárhagslegur ávinningur fylgir árangri í deildarkeppni. Samt sem áður virðist sem árangur innan vallar og utan haldist að einhverju leyti í hendur og sennilega má leita einföldustu skýringar í því að fleiri vilji styðja lið sem vel gengur, nema San Antonio.


Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu og á Vísi

Betri yfirsýn yfir fjármálin

Skráðu þig á póstlista og fáðu send ókeypis fréttabréf um persónuleg fjármál og lífeyrismál. Fáðu sendan gagnlegan fróðleik sem hjálpar þér að taka betri fjárhagslegar ákvarðanir.

Persónuleg fjármál

Takk fyrir að skrá þig

Lífeyrismál

Takk fyrir að skrá þig

Um Björn Berg

Björn Berg Gunnarsson er sjálfstæður fjármálaráðgjafi og fyrirlesari í Reykjavík.

Hann hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 2007, þar af sem fræðslustjóri og deildarstjóri greiningardeildar Íslandsbanka. Björn rekur ráðgjafarþjónustuna BB rágjöf, býður upp á námskeið og fyrirlestra fyrir vinnustaði og einstaklinga og er reglulegur álitsgjafi um fjármál í íslenskum fjölmiðlum. Hann er höfundur bókarinnar Peningar (2021).

bottom of page