Þátttökulið Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu deila með sér um 270 milljarða króna verðlaunafé þetta keppnistímabilið. Heildartekjur keppninnar hafa meira en þrefaldast frá því Barcelona lagði Arsenal að velli í París árið 2006 og fjárhagslegur ávinningur liða af árangri í keppninni hefur sömuleiðis margfaldast. Það skyldi því engan undra að keppnin um þennan eftirsóttasta bikar Evrópu sé hörð.
Rekstur fjölmargra liða veltur að umtalsverðu leyti á þátttöku í keppninni og barist er um þá leikmenn sem talið er að geti skipt sköpum, en launaverðbólgan hjá bestu knattspyrnumönnum álfunnar hefur verið með ólíkindum undanfarin ár. Skila há laun þó samsvarandi árangri í keppninni? Ef við lítum aftur til ársins 2013 og berum launagreiðslur saman við frammistöðu til og með síðustu leiktíð sést að há laun eru alls engin trygging fyrir góðum árangri.
Real Madrid, sem greitt hefur hæstu launin, hefur vissulega einnig náð bestum árangri (þó Ajax hafi sett risastórt strik í reikninginn á dögunum) en uppskera annarra liða er ansi misjöfn. Áberandi er hversu vel Atlético frá Madríd hefur gengið að nýta sína starfskrafta, þrátt fyrir að greiða lægst laun þeirra 17 liða sem oftast hafa verið meðal þeirra útgjaldahæstu á tímabilinu.
Einungis Real Madrid, Bayern og Barcelona hefur vegnað betur. Það ætti ekki að koma mörgum á óvart hverjum hefur mistekist, umfram aðra, að snúa háum launagreiðslum í sigra á vellinum.
Árangur Manchester United, sem er í fjórða sæti þeirra sem hæstu launin greiða, hefur frá 2013 verið hvað mest undir væntingum og er liðið átta sætum neðar á lista yfir árangur félaganna. Með fræknum sigri á PSG í síðustu viku lagfærir liðið þó nokkuð stöðu sína í þessum samanburði. Ekki má þó gleyma gömlu ítölsku stórveldunum frá Mílanó, sem saman hefur einungis einu sinni tekist að að komast í keppnina á þessu fimm ára tímabili þrátt fyrir háar launagreiðslur.
Þessi einfaldi samanburður sýnir því ekki fram á fylgni milli launagreiðslna og árangurs stærstu félaganna en það væri þó fullmikil einföldun að halda öðru fram en að fjárhagslegir burðir leiki lykilhlutverk í nútímafótbolta. Þegar litið er til stærstu deilda álfunnar er það einungis Barcelona á Spáni sem unnið hefur flesta deildarmeistaratitla á tímabilinu, þrátt fyrir að greiða örlítið lægri laun en erkifjendurnir hjá Real Madrid. Það er því enn hægt að kaupa árangur. Það er bara aðeins erfiðara í Meistaradeildinni.
Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu