top of page
Writer's pictureBjörn Berg Gunnarsson

Hvar eru brýrnar á evru­seðlunum?

Þegar peningaseðlarnir hverfa munu fá okkar væntanlega sakna þeirra vegna fagurfræðilegra sjónarmiða. Í þau örfáu skipti sem ég dreg fram brakandi Brynjólf Sveinsson gef ég mér sjaldan tíma til að virða seðilinn sérstaklega fyrir mér og hugsa um í hvað í ósköpunum maðurinn er klæddur.


Á seðlum má þó oft finna áhugavert myndefni og fá jafnvel tilfinningu fyrir hvernig útgáfulöndin kjósa að birtast umheiminum. Það er því engin tilviljun að Jónas Hallgrímsson og lóan sjálf prýði nýjasta seðilinn okkar, 10.000 krónurnar frá árinu 2013. Hefði hann verið gefinn út þremur árum síðar mætti færa rök fyrir því að smella fúlskeggjuðum Aroni Einari Gunnarssyni með upprétta arma í miðju klappi á seðilinn. Það er svo sem ekki of seint ef Seðlabankinn hefur áhuga á að bæta við flóruna.


Annað slagið eru seðlar endurhannaðir, hvort sem tilefnið er að auka varnir gegn peningafölsun eða laga myndefni að nútímanum og tíðarandanum. Nú stendur sem dæmi til að endurhanna 20 dollara seðil Bandaríkjanna og verður mynd af Andrew Jackson, sjöunda forseta landsins, skipt út fyrir mannréttindafrömuðinn Harriet Tubman. Við sjálfstæði Lýðveldisins Kongó á sínum tíma var andliti einræðisherrans Mobutu Sese Seko ekki skipt út fyrir sjálfstæðishetju eða heppilegra myndefni heldur bókstaflega fjarlægt. Andlit hans var klippt af seðlunum og sat eftir stórt og myndarlegt gat.


Evran

Þegar ný mynt er gefin út gefst þó færi til að hanna herlegheitin frá grunni. Árið 2002 voru fyrstu evruseðlarnir gefnir út og þá þurfti eðlilega að finna hentugt myndefni. Aftan á seðlana hafði austurríski listamaðurinn Robert Kalina teiknað fallegar brýr héðan og þaðan úr álfunni, til dæmis frá Ítalíu og Frakklandi. Það dugði þó aldeilis ekki til annars en að valda ósætti meðal þeirra sem ekki áttu fulltrúa á seðlunum sjö. Því voru nýjar brýr teiknaðar, ímyndaðar brýr úr kollinum á Kalina, sem endurspegla áttu hina ýmsu byggingarstíla.


Til að slá í gegn í góðu samkvæmi má því draga fram evruseðil, benda á brúna á bakhliðinni og ljóstra því upp að viðkomandi brú sé ekki til. Svo teygar maður góðan sopa rétt á meðan veislugestir grípa andköf af hrifningu. En eru brýrnar í alvörunni ekki til?


Meistari Robin Stam

Mér er nokk sama hvaða listafólk þið nefnið og hversu virt það er. Fyrir mér er Hollendingurinn Robin Stam hinn eini og sanni meistari. Ég viðurkenni þó að hér nota ég orðið „meistari“ heldur í því samhengi sem knattspyrnuáhugafólk notar um gamlan skólafélaga í hálfleik.


Árið 2011 plataði Stam þessi fulltrúa hollenska bæjarins Spijkenisse með sér í að reisa allar brýrnar sjö í bænum. Allar voru þær málaðar sömu litum og viðkomandi seðlar og geta áhugasamir ferðalangar nú virt fyrir sér brýrnar frægu, sem þeir héldu væntanlega áður að væru gamlar og merkilegar brýr víða um álfuna eða hugarburður Robert Kalina. Þetta kalla ég nýsköpun í ferðaþjónustu.


Greinin birtist fyrst á Vísi

bottom of page