top of page

Dval­ar- og hjúkr­un­ar­heim­ili

Writer: Björn Berg Gunnarsson
Björn Berg Gunnarsson
Jul 26, 2018
1 min read

Updated: May 13, 2023

Greinin hefur verið uppfærð vegna þeirra breytinga sem gerðar voru í upphafi árs 2023.


Greiðslur Tryggingastofnunar breytast talsvert sé farið á dvalar- eða hjúkrunarheimili. Stofnunin greiðir ekki lengur ellilífeyri með tilheyrandi tekjutengdum skerðingum heldur tekur lífeyrisþegi þátt í dvalarkostnaði og um slíkt gilda allt aðrar reglur.


Þátttaka í dvalarkostnaði

Greiðsluþátttaka er tekjutengd. Hún verður ekki hærri en 475.451 kr. á mánuði en séu mánaðartekjur íbúa á dvalarheimili yfir 107.1653 kr. eftir skatt á mánuði fara þær tekjur sem umfram eru (upp að 582.616 kr. eftir skatt á mánuði) í leigu. Ef tekjur viðkomandi eru lágar eða engar fær hann greitt ráðstöfunarfé frá TR. Úttekt séreignarsparnaðar hefur engin áhrif á þátttöku í dvalarkostnaði.


Verum undir allt búin

Ástæður vistar á dvalar- eða hjúkrunarheimili geta verið þær sömu og ástæður þess að viðkomandi á erfitt með að undirrita samninga, láta ættingjum í té umboð, ganga frá fyrirframgreiddum arfi eða gera aðrar ráðstafanir varðandi fjármál sín. Það er ágætt að hafa slíkt í huga þegar lífeyrismálin eru skoðuð. Æskilegt er að þekkja vandlega sína stöðu þegar styttast fer í starfslokaaldur, til dæmis varðandi lífeyrisréttindi maka.



Greinin er birt með leyfi Íslandsbanka og birtist fyrst á vef Íslandsbanka

Betri yfirsýn yfir fjármálin

Skráðu þig á póstlista og fáðu send ókeypis fréttabréf um persónuleg fjármál og lífeyrismál. Fáðu sendan gagnlegan fróðleik sem hjálpar þér að taka betri fjárhagslegar ákvarðanir.

Persónuleg fjármál

Takk fyrir að skrá þig

Lífeyrismál

Takk fyrir að skrá þig

Um Björn Berg

Björn Berg Gunnarsson er sjálfstæður fjármálaráðgjafi og fyrirlesari í Reykjavík.

Hann hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 2007, þar af sem fræðslustjóri og deildarstjóri greiningardeildar Íslandsbanka. Björn rekur ráðgjafarþjónustuna BB rágjöf, býður upp á námskeið og fyrirlestra fyrir vinnustaði og einstaklinga og er reglulegur álitsgjafi um fjármál í íslenskum fjölmiðlum. Hann er höfundur bókarinnar Peningar (2021).

bottom of page